Telja uppruna frekar skipta máli 21. febrúar 2012 04:00 Unglingar Rannsóknin hófst haustið 2010 og er til þriggja ára. Niðurstöðurnar nú eru aðeins lítið brot af þeim upplýsingum sem óskað er eftir.nordicphotos/getty Nordicphotos/getty
Framhaldsskólanemar sem eiga foreldra frá öðru landi en Íslandi eru líklegri til að telja menningu sína og uppruna mikilvæga en börn sem eiga bara íslenska foreldra. Þetta er meðal fyrstu niðurstaðna viðamikillar rannsóknar á lífsviðhorfum og lífsgildi ungmenna í fjölmenningarsamfélagi. Rannsóknin var kynnt á málstofu um framhaldsskólarannsóknir í síðustu viku. Um var að ræða fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar, sem er ekki enn lokið. Rannsóknin hefur verið lögð fyrir nemendur í fjórum framhaldsskólum en þrír til viðbótar taka þátt í henni. 81 prósent ungmenna sagðist vera þeirrar skoðunar að menning og uppruni skipti þau miklu máli. Hlutfallið var 89 prósent hjá nemendum sem bjuggu hjá foreldrum í blandaðri sambúð, þar sem annað foreldri kemur frá öðru landi, en 79 prósent hjá þeim ungmennum sem bjuggu hjá foreldrum af íslenskum uppruna. Gunnar J. Gunnarsson, Gunnar E. Finnbogason, Hanna Ragnarsdóttir og Halla Jónsdóttir hafa unnið að rannsókninni. Hún hófst haustið 2010 og er skipulögð til þriggja ára. Byggt er á þverfaglegri nálgun mismunandi fræða og margar rannsóknaraðferðir verða notaðar til að fá sem fjölbreyttastar niðurstöður. - þeb
Fréttir Mest lesið Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Erlent Íslenskir Trumpistar fylgjast spenntir með skammt frá Trump sjálfum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gætum þurft að bíða í nokkra daga ef ekkert óvænt gerist Erlent Grátbiðja deiluaðila að finna lausn Innlent Afskipti af bifreið endaði með handtöku fjögurra manna Innlent Keyrði utan vegar og hafnaði á öðrum bíl sem valt Innlent Fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra Innlent Lausir hundar hafi drepið fleiri kindur Innlent Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við Innlent Fleiri fréttir Íslenskir Trumpistar fylgjast spenntir með skammt frá Trump sjálfum Grátbiðja deiluaðila að finna lausn Rekstur borgarinnar allur að braggast segir borgarstjóri Fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra Eitt barn enn á gjörgæslu og líðan þess stöðug Afskipti af bifreið endaði með handtöku fjögurra manna Lausir hundar hafi drepið fleiri kindur Sögulegt spennustig týnd börn og bugaðir foreldrar Leggja til að stofna þjóðgarð í Dalabyggð Ástand skapaðist vegna skorts á armböndum Keyrði utan vegar og hafnaði á öðrum bíl sem valt Ógnaði barnsmóður sinni með haglabyssu Engar upplýsingar fást um tengsl konunnar við barnið Bein útsending: Frambjóðendur ræða málefni fatlaðs fólks Fjörutíu prósent kjósenda Miðflokks vilja Trump „Við erum ógeðslega sár fyrir hönd barnanna okkar“ Leikskólinn Mánagarður opinn á ný Bein útsending: Loftslagsmál rædd á Umhverfisþingi Frambjóðendur ræða áfengis- og vímuefnamál Perlan þurfi að seljast fyrir áramót svo dæmið gangi upp Hagnast um hálfan milljarð og reiknar með þrefalt meira á næsta ári Bein útsending: Kosningafundur með formönnum flokkanna Fjárhagsáætlun borgarinnar kynnt og Kanar ganga að kjörborðinu Aukin hætta á skriðuföllum vegna rigningar Sakfelldur fyrir þátt í banaslysi en annar ökumaður aldrei fundist Bein útsending: Kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar „Ég var barnið sem vildi ekki taka í höndina á kennaranum sínum“ Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við Umboðsmaður barna segir verkföll kennara mismuna börnum Segja verkfall kennara skapa ójafnræði og óréttlæti Sjá meira