Tveir nýir frá Hyundai og ný fólksbílalína frá Renault 11. janúar 2012 16:00 Hyundai i30.
Tveir nýir bílar frá Hyundai koma til landsins nú í vetur. Þetta eru annars vegar ný kynslóð af fólksbílnum i30 og hins vegar glænýr bíll frá Hyundai sem heitir i40," segir Bjarni Sigurðsson, sölustjóri Hyundai og Renault hjá Ingvari Helgasyni og B&L.Vinsæll bíll i30 er að sögn Bjarna frábær bíll í alla staði. „Hann kemur í stað hins mjög svo áreiðanlega i30 bíls sem við höfum selt í miklu magni undanfarin ár," segir Bjarni. Hin nýja útgáfa hefur fengið fágað útlit en aðrar breytingar er ný 1,6 dísilvél sem skilar 126 hestöflum. „Þrátt fyrir að vélin sé stærri mengar hún innan við 100g sem er besti árangur hjá nokkrum bílaframleiðanda í þessum stærðarflokki með þetta öfluga vél," upplýsir Bjarni. Hann segist bíða í ofvæni eftir að kynna nýja i30 til sögunnar en verðið verður frá 3.090.000 krónur miðað við núverandi forsendur.Renault i40.i40 í stað Sonata i40 er nýr bíll frá Hyundai sem kynntur verður til sögunnar í vetur. „Hyundai i40 tekur við af hinum mjög svo lofaða Hyundai Sonata, bíl sem fyrir löngu hefur sannað ágæti sitt og endingu meðal annars hjá leigubílstjórum," segir Bjarni. Hann telur i40 setja ný viðmið hjá Hyundai hvað varðar hönnun og glæsileika. „Þetta er bíll fyrir vandláta." Uppgefin eyðsla á sjálfskiptum i40 með 136 hestafla dísilvél er ekki nema 5,1 lítri á hverja 100 km í langkeyrslu en beinskiptur fer hann í 4,1 lítra og mengar ekki nema 119g.Renault Megane III Sport TourerNý fólksbílalína Renault Ingvar Helgason og B&L kynnir nýja fólksbílalínu Renault laugardaginn 14. janúar næstkomandi. „Þar ber helst að nefna hinn rúmgóða Renault Megane III Sport Tourer en það er þriðja kynslóð af skutbílaútfærslunni af Megane," segir Bjarni. Nýi bíllinn er nokkuð stærri en forverinn og er þarna á ferðinni fjölskyldubíll með miklu skottplássi. „Lítil eyðsla, hagstætt verð og mikið rekstraröryggi gerir þetta líklega að bestu bílakaupunum í dag," útskýrir hann. Eyðslan á sjálfskipum dísil skutbíl er uppgefin aðeins 3,7 lítrar á hverja 100 km í langkeyrslu. „Eftir okkar bestu upplýsingum er hún sú lægsta sem þekkist hjá nokkrum sjálfskiptum bíl í þessum flokki," segir Bjarni og bætir við að bíllinn mengi lítið eða 110g, sé þar með visthæfur bíll hjá Reykjavíkurborg og fái því frítt í stæði ásamt því að greiða einungis lámarks bifreiðagjald eða 5.000 kr. tvisvar á ári. Sjálfskipt útgáfa bílsins kostar 3.690.000 kr. sem þykir afar hagstætt. „Til stóð að kynna bílinn mun fyrr en þar sem allir bílar seldust áður en þeir komu til landsins var ákveðið að bíða með það þar til nægjanlegt magn væri komið í framleiðslu fyrir okkur til að anna eftirspurn."
Mest lesið Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Steinhissa á MR og rifjar lúmskt upp sjónvarpsleysið á fimmtudögum Atvinnulíf Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Viðskipti innlent Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Telur um dulda launahækkun skrifstofufólks að ræða Viðskipti innlent Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Viðskipti innlent Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Viðskipti innlent Fleiri fréttir KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent