Skoda á Íslandi með hæstu markaðshlutdeild V-Evrópu 11. janúar 2012 16:00 Sigurður segir Skoda hafa lága bilanatíðni og að ánægja viðskiptavina sé mikil. Mynd/gva
Hekla tók við Skoda umboðinu árið 1997 og síðan hafa vinsældir bílanna aukist jafnt og þétt. „Við höfum að jafnaði verið með í kringum fjögurra til sex prósenta markaðshlutdeild. Árið 2010 var hún 5,9 prósent en í fyrra 8,9 prósent. Við vorum með fleiri selda bíla fyrir hrun en markaðshlutdeildin hefur aldrei verið meiri," segir Sigurður Sigurðsson, sölustjóri Skoda. Hann segir Skoda á Íslandi sömuleiðis vera með hæstu markaðshlutdeild í Vestur-Evrópu. „Þar er meðaltalið í kringum þrjú prósent en Finnar koma á hæla okkar með rétt um átta prósent." Hvernig skýrir þú þessa velgengni? „Bílarnir hafa staðið sig vel og eru með mjög lága bilanatíðni. Ánægja viðskiptavina er mikil og við erum með fastakúnna sem koma aftur og aftur. Möguleikarnir eru auk þess margir og er hægt að velja um beinskipta, sjálfskipta, fjórhjóladrifna og dísilknúna bíla. Þá höfum við lagt mikla áherslu á framúrskarandi þjónustu á verkstæðinu sem er augljóslega að skila sér." Hvað Skoda Octavia varðar segir Sigurður mörgum koma á óvart hversu rúmgóður bíllinn er. „Farþega- og farangursrýmið er einstaklega rúmgott sem skýrir eflaust hvers vegna þeir teljast ákjósanlegir fjölskyldubílar. Ekki spillir fyrir hvað bíllinn er eyðslugrannur auk þess sem verðið er sambærilegt við verð annarra stórra fólksbíla. Þá eru allar útfærslur að innan sem utan hugvitsamlegar og virðast Tékkarnir alveg vita hvað þeir eru að gera." En Skoda hefur ekki alltaf þótt eftirsóknarvert merki. „Það er rétt og fyrir nokkrum áratugum var jafnvel talað um druslur. Það sem færri vita er að Skoda var mjög virtur bílaframleiðandi í byrjun síðustu aldar. Fyrirtækið á rætur sínar að rekja til ársins 1895 þegar tékkarnir Václav Laurin og Václav Klement hófu reiðhjólaframleiðslu. Árið 1899 hófu þeir að framleiða mótorhjól og kom fyrsti Laurin & Klement bíllinn, Voiturette A, á markað árið 1905. Bílarnir voru framleiddir undir merkinu L&K til ársins 1926 þegar þeir fengu nafnið Skoda. Í kringum seinni heimsstyrjöldina fór hins vegar að halla undan fæti og var það ekki fyrr en um það leyti sem múrinn féll að velgengnin hófst á ný." Eigendur Skoda hafa að sögn Sigurðar sett sér háleit markmið. „Þeir seldu um 875 þúsund bíla í fyrra og var aukningin 15 prósent á milli ára sem er langt umfram væntingar. Markmiðið er að fara í eina og hálfa milljón bíla árið 2018." Skoda sækir enn í sig veðriðSkoda Octavia var mest seldi bíllinn á Íslandi árið 2011.Markaðshlutdeild Skoda- fólksbifreiða á Íslandi var 8,9 prósent árið 2011.464 Skoda-bílar seldust á Íslandi í fyrra.Skoda á Íslandi er með hæstu markaðshlutdeild í Vestur-Evrópu.Skoda seldi 875 þúsund bíla á heimsvísu í fyrra sem er 15 prósenta aukning frá árinu 2010.Skoda setur sér það markmið að selja eina og hálfa milljón bíla árið 2018.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Engar reglur um merkingar á bílastæðum sem rukkað er fyrir Neytendur Fleiri fréttir Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira