Sport

Aníta bætti sig um sex sekúndur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aníta Hinriksdóttir á fleygiferð í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.
Aníta Hinriksdóttir á fleygiferð í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Mynd/FRÍ
Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, bætti eigið Íslandsmet í 600 metra hlaupi innanhúss á Jólamóti ÍR sem fram fór í Laugardalshöll í gær.

Aníta kom í mark á tímanum 1:27,73 sekúndur og bætti ársgamalt Íslandsmet sitt um tæpar fimm sekúndur.

Þetta er annað Íslandsmet Anítu á fimm dögum því bún bætti 34 ára gamalt Íslandsmet í 1000 metra hlaupi innanhúss á sunnudaginn.


Tengdar fréttir

Aníta bætti elsta Íslandsmetið innanhúss

Aníta Hinriksdóttir, hlaupakonan stórefnilega úr ÍR, setti í dag glæsilegt Íslandsmet í þúsund metra hlaupi á Aðventumóti Ármanns í Laugardalshöll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×