Ólafur til Flensburg Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. nóvember 2012 21:05 Mynd/Stefán
Ólafur Gústafsson, leikmaður FH, er á leið til þýska stórliðsins Flensburg. Þetta staðfesti Einar Andri Einarsson, þjálfari FH, við Vísi. Ólafur á að fylla í skarð Arnórs Atlasonar sem sleit hásin í leik með Flensburg um helgina. Flensburg var í miklum vandræðum því Arnór var fenginn til liðsins í sumar vegna meiðsla Petar Djordjic. Svo þegar að Lars Kaufmann meiddist fyrr í haust var Arnór eina rétthenta skyttan eftir í liðinu. Það voru því góð ráð dýr þegar að Arnór meiddist um helgina en hann verður frá næsta hálfa árið eða svo vegna þessa. Forráðamenn Flensburg settu sig þá í samband við FH með það fyrir augum að fá Ólaf. „Markaðurinn er lokaður víða í Evrópu og mér skilst að þetta hafi komið inn á borð hjá FH í gær," sagði Einar Andri við Vísi. „Þetta er auðvitað frábært tækifæri fyrir Ólaf og það sem hann hefur stefnt að. Þetta er draumur fyrir hann og ekki hægt að standa í vegi fyrir þessu." „Það er þó ekki búið að skrifa undir neitt enn sem komið er en ef þetta verður staðfest þá hefur Ólafur spilað sinn síðasta leik með FH í bili." Líklegt er að Ólafur muni semja við Flensburg út leiktíðina. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar.
Íslenski handboltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira