Crossfit XY opnar í Garðabæ 13. nóvember 2012 12:43
CRossfit xy kynnir Nýopnuð crossfit-stöð að Miðhrauni 2 í Garðabæ býður upp á frábær opnunartilboð. Þar er lögð áhersla á faglega þjálfun í skemmtilegu og jákvæðu umhverfi. Grunnnámskeið hefjast á morgun. CrossFit XY er nýopnuð crossfit-stöð að Miðhrauni 2. Þar er 640 fermetra æfingarými sem skiptist í tvo stóra sali fyrir hóptíma og einn minni sem hentar betur fyrir smærri hópa og einkaþjálfun. "Utandyra er svo greiður aðgangur að hlaupastígum í hrauninu í kring og stutt í Heiðmörkina. Þá er einnig boðið upp á aðgang að heitum og köldum potti og mögulegt að bóka tíma í nudd," segir Unnar Helgason yfirþjálfari CrossFit XY. Crossfit er skemmtilegt og öflugt þjálfunarkerfi sem skilar einstökum árangri og bættri heilsu. "Crossfit byggist upp á stöðugt breytilegum æfingum sem búa okkur undir að takast á við líkamlegar áskoranir af hvaða tagi sem er. Við hlaupum, róum, notum lóð, ketilbjöllur, bolta og eigin þyngd svo eitthvað sé nefnt. Þar sem crossfit er samsett úr mörgum íþróttagreinum þurfa allir að huga vel að grunnatriðum crossfit-æfinga. Við leggjum því ríka áherslu á að iðkendur ljúki grunnnámskeiði áður en þeir byrja að sækja opna tíma í crossfit." Árangur er mælikvarði á velgengni og hvati til að halda áfram. "Í crossfit er árangurinn mælanlegur. Ákveðnar æfingar eru framkvæmdar og árangurinn mældur. Þær eru svo endurteknar síðar og bornar saman við fyrri mælingar. Þannig getur fólk fylgst með framförinni og séð árangurinn í tölum. Það er ótrúlega gaman að fylgjast með fólki komast í form sem það gat ekki ímyndað sér að það myndi komast aftur í." Grunnnámsskeið hefjast hjá CrossFit XY á morgun þar sem hægt er að velja um fjóra mismunandi tíma. "Við erum enn að taka á móti skráningum og bjóðum upp á sérstök opnunartilboð þar sem einn mánuður í crossfit fylgir frítt með hverju grunnnámskeiði." CrossFit XY er opið alla virka daga frá 05.45 til 20.45 og á laugardögum frá 9 til 15 en lokað er á sunnudögum. "Við hvetjum fólk til að líta inn og kíkja á stöðina." Hægt er að sjá stundatöflu ásamt öllum nauðsynlegum upplýsingum um stöðina á www.crossfitxy.is.
Mest lesið Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Neytendur „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Viðskipti erlent Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sagði einhver fasteign á hjólum? Volvo EX90 reynsluakstur Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Ótrúlegar viðtökur á stuttum tíma Greiðsluáskorun Sinna verktöku hjá Wolt samhliða námi og öðrum störfum Smáhýsin frá BYKO eru vinsæll valkostur fyrir hvaða tilefni sem er Langar meira í 911 T-Hybrid en bæði lungun sín Sjá meira