Tvær 17 ára berjast við Hörpu um gullskóinn í Pepsi-deild kvenna í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. september 2012 13:10 Sandra María Jessen úr Þór/KA. Mynd/Daníel
Lokaumferð Pepsi-deildar kvenna fer fram í dag. Þór/KA er þegar búið að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn en það verður barist um gullskóinn og þá kemur í ljós hvaða félag fylgir KR niður í 1. deildina. Þrír leikmenn eiga mestan möguleika á því að fá gullskóinn í ár en það eru þær Sandra María Jessen úr Þór/KA, Elín Metta Jensen úr Val og Harpa Þorsteinsdóttir úr Stjörnunni. Sandra María og Elín Metta eru aðeins 17 ára gamlar.Sandra María er búin að skora mest eða 17 mörk og hún verður í sviðsljósinu á Fylkisvelli þar sem Þór/KA heimsækir Árbæjarkonur. Fylkir er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.Elín Metta hefur skorað einu marki minna eða 16 mörk en hún spilar með Valsliðinu á móti Aftureldingu í Mosfellsbænum. Afturelding er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.Harpa hefur skorað 15 mörk og mætir með Stjörnuliðinu á Selfoss þar sem Stjarnan þarf helst stórsigur til þess að tryggja sér annað sætið. Stjarnan og ÍBV eru jöfn en ÍBV er með eitt mark í forskot í markatölu.Shaneka Jodian Gordon úr ÍBV hefur skorað 13 mörk og á því ekki mikla von á gullskónum en ÍBV fær botnlið KR í heimsókn út í Eyjar. Gordon gæti hinsvegar náð í skó því hún hefur leikið færri mínútur en allar þær sem eru fyrir ofan hana. Elín Metta stendur líka betur að vígi en Sandra María þegar kemur að spiluðum mínútum og verður því ofar endi þær jafnar. Harpa hefur hinsvegar spilað meira en þær báðar og verður alltaf neðst skori hún jafnmikið og hinar.Markahæstar í pepsi-deild kvenna: 1. Sandra María Jessen, Þór/KA - 17 mörk (17 leikir, 1508 mínútur) 2. Elín Metta Jensen, Val - 16 mörk (17 leikir, 1384 mínútur) 3. Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni - 15 mörk (17 leikir, 1520 mínútur) 4. Shaneka Jodian Gordon, ÍBV - 13 mörk (17 leikir, 1256 mínútur) 5. Katrín Ásbjörnsdóttir, Þór/KA - 12 mörk (16 leikir, 1244 mínútur)
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Gummi Ben væri mikið til í að spila með KR-liðinu í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira