Formúla 1

Hamilton vill ekki hjálp frá Button

Birgir Þór Harðarson skrifar
Button er á mjög tæpa möguleika á að vinna titilinn svo hann þarf að öllum líkindum að hjálpa Hamilton.
Button er á mjög tæpa möguleika á að vinna titilinn svo hann þarf að öllum líkindum að hjálpa Hamilton. nordicphotos/afp
Lewis Hamilton, ökumaður McLaren-liðsins í Formúlu 1, vill ekki að liðið beiti liðsskipunum svo Jenson Button hjálpi honum í titilbaráttunni. McLaren hefur sagt það mögulegt að Button verði gert að hjálpa til í stað þess að sækja titilinn sjálfur.

"Jenson keppir fyrir liðið og hann keppir um stig í titilbaráttunni fyrir sig sjálfan. Hann er einnig að verða betri og betri eftir því sem líður á," sagði Hamilton.

Hamilton er 47 stigum á eftir Fernando Alonso í titilbaráttunni. Jenson Button er heilum 88 stigum á eftir Alonso.

"Maður horfir aftur til áranna þegar ökumenn leyfðu keppinautum sínum að fara fram úr ef þeir áttu möguleika á titlinum. Það hljómar ekki rétt fyrir mér og ég krefst þess ekki af Jenson," sagði Hamilton.

"Ef ég er ekki nógu fljótur er það bara tilfelið. Ég vil sigra vegna þess að ég er fljótastur, ekki af því að ég fékk gefins stig frá einhverjum öðrum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×