Svíi valinn inn í NBA-deildina í nótt - Jordan valdi Jeffrey Taylor Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2012 14:15 Jeffrey Taylor. Mynd/Nordic Photos/Getty
Svíinn Jeffrey Taylor varð í nótt þriðji sænski körfuboltamaðurinn í sögunni sem er valinn inn í NBA-deildina. Charlotte Bobcats notaði þá 31. valréttinn til að tryggja sér Taylor en það er einmitt Michael Jordan sem ræður öllu hjá Bobcats-liðinu. Jonas Jerebko, núverandi leikmaður Detroit Pistons, var valinn númer 39 fyrir þremur árum síðan en Jerebko var með 8,7 stig og 4,8 fráköst að meðaltali með Pistons á síðasta tímabili. Jeffrey Taylor er 23 ára og 201 sm framherji sem hefur spilað með Vanderbilt-háskólanum við góðan orðstýr. Hann var með 16,1 stig og 5,6 fráköst í leik á lokaárinu sínu auk þess að hitta úr 42 prósent þriggja stiga skota sinna en hann þykir líka mjög góður varnarmaður. Jeffrey Taylor er sonur Jeff Taylor sem lék í NBA-deildinni með Houston Rockets (1982–1983) og Detroit Pistons (1986–1987) áður en hann fór til Evrópu. Taylor settist að lokum að í Svíþjóð þar sem hann eignaðist Jeffrey árið 1989. Jonas Jerebko og Jeffrey Taylor verða væntanlega báðir með sænska landsliðinu í undankeppni EM sem hefst í næsta mánuði.
NBA Tengdar fréttir Anthony Davis valinn fyrstur í nýliðavali NBA Kraftframherjinn Anthony Davis úr Kentucky-háskólanum var valinn fyrstur í nýliðavali NBA-deildarinnar sem hófst undir miðnætti. 28. júní 2012 23:49 Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Enski boltinn Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Enski boltinn Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag Fótbolti Fleiri fréttir Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta Sjá meira
Anthony Davis valinn fyrstur í nýliðavali NBA Kraftframherjinn Anthony Davis úr Kentucky-háskólanum var valinn fyrstur í nýliðavali NBA-deildarinnar sem hófst undir miðnætti. 28. júní 2012 23:49