Þóra Arnórsdóttir: Auðmjúk og þakklát 13. apríl 2012 12:33 Þóra Arnórsdóttir. „
Þetta kom vissulega á óvart því við erum rétt að fara af stað. Við erum auðmjúk og þakklát, það eru allavega tilfinningarnar sem við finnum á þessum morgni," segir Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður og forsetaframbjóðandi, en hún og Ólafur Ragnar Grímsson forseti njóta jafn mikils fylgis kjósenda, samkvæmt könnun Fréttablaðsins, sem gerð var í gærkvöldi og í fyrrakvöld. Bæði mælast með 46 prósenta fylgi, en aðrir frambjóðendur fá innan við þriggja prósenta fylgi. 65 prósent aðspurðra tóku afstöðu. Ólafur nýtur meira fylgis á landsbyggðinni og meðal karla, en Þóra fær meira fylgi á höfuðborgarsvæðinu og meðal kvenna. Meirihluti Sjálfstæðismanna styður Ólaf, Meirihluti Vinstri grænna styður Þóru, afstaða Framsóknarmanna er til helminga, en Þóra nýtur yfirburðafylgis meðal Samfylkingarfólks. Þessi niðurstaða kemur stjórnmálaskýrendum á óvart, og Þóru líka. Hún er engu síður róleg yfir niðurstöðunni. „Við erum þakklát og glöð en alveg róleg yfir þessu," segir Þóra sem bætir við að það sé gott að fá slíka hvatningu sem hún segir að sé staðfesting á þeim meðbyr sem hún finni fyrir. En verkið er rétt að hefjast að sögn Þóru, „nú er það bara að fara og hitta kjósendur."
Forsetakosningar 2012 Mest lesið Vaktin: Forsetakosningar í Bandaríkjunum Erlent Íslenskir Trumpistar fylgjast spenntir með skammt frá Trump sjálfum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gætum þurft að bíða í nokkra daga ef ekkert óvænt gerist Erlent Grátbiðja deiluaðila að finna lausn Innlent Afskipti af bifreið endaði með handtöku fjögurra manna Innlent Fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra Innlent Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við Innlent Keyrði utan vegar og hafnaði á öðrum bíl sem valt Innlent Lausir hundar hafi drepið fleiri kindur Innlent Fleiri fréttir Íslenskir Trumpistar fylgjast spenntir með skammt frá Trump sjálfum Grátbiðja deiluaðila að finna lausn Rekstur borgarinnar allur að braggast segir borgarstjóri Fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra Eitt barn enn á gjörgæslu og líðan þess stöðug Afskipti af bifreið endaði með handtöku fjögurra manna Lausir hundar hafi drepið fleiri kindur Sögulegt spennustig týnd börn og bugaðir foreldrar Leggja til að stofna þjóðgarð í Dalabyggð Ástand skapaðist vegna skorts á armböndum Keyrði utan vegar og hafnaði á öðrum bíl sem valt Ógnaði barnsmóður sinni með haglabyssu Engar upplýsingar fást um tengsl konunnar við barnið Bein útsending: Frambjóðendur ræða málefni fatlaðs fólks Fjörutíu prósent kjósenda Miðflokks vilja Trump „Við erum ógeðslega sár fyrir hönd barnanna okkar“ Leikskólinn Mánagarður opinn á ný Bein útsending: Loftslagsmál rædd á Umhverfisþingi Frambjóðendur ræða áfengis- og vímuefnamál Perlan þurfi að seljast fyrir áramót svo dæmið gangi upp Hagnast um hálfan milljarð og reiknar með þrefalt meira á næsta ári Bein útsending: Kosningafundur með formönnum flokkanna Fjárhagsáætlun borgarinnar kynnt og Kanar ganga að kjörborðinu Aukin hætta á skriðuföllum vegna rigningar Sakfelldur fyrir þátt í banaslysi en annar ökumaður aldrei fundist Bein útsending: Kynna fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar „Ég var barnið sem vildi ekki taka í höndina á kennaranum sínum“ Flugslysið sem skók þjóðina og aldrei munu fást svör við Umboðsmaður barna segir verkföll kennara mismuna börnum Segja verkfall kennara skapa ójafnræði og óréttlæti Sjá meira