Íslenskur körfuboltamaður negldi samherja sinn niður Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. apríl 2012 23:15
Stórskrýtið atvik átti sér stað í viðureign Augnabliks og Leiknis í 2. deild karla í körfuknattleik síðastliðið föstudagskvöld. Pirraður leikmaður Leiknis spyrnti þá knettinum af fullu afli í samherja sinn. Um undanúrslitaviðureign í 2. deildinni var að ræða og var leikurinn, sem fram fór í Kórnum, í járnum. Jafnt var að loknum venjulegum leiktíma en Augnablik sigldi fram úr í framlengingunni. Undir lok hennar reyndi Sigurður Gíslason þriggja stiga skot. Skotið geigaði og í baráttunni um frákastið tók Sigurður sig til og spyrnti í knöttin af fullu afli. Ekki vildi betur til en svo að liðsfélagi hans, Brynjar Smári Rúnarsson, stóð skammt undan og fékk knöttinn beint í kviðinn. Líklegt má telja að Sigurður hafi verið í pirraðri kantinum enda gekk hann í burtu án þess að veita liðsfélaga sínum aðstoð sem lá eftir á gólfinu. Heimildir undirritaðs herma þó að Sigurður dauðsjái eftir sparkinu og Brynjar Smári hafi verið fljótur að jafna sig. Myndatökumennirnir skemmtu sér konunglega yfir því sem fram fór.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í súrknattleik Sport Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Fótbolti Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Fótbolti Ólympíufari í snjóbrettafimi lést í snjóflóði Sport Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Enski boltinn Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Fleiri fréttir Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Ruddi Wembanyama og var rekinn af velli fyrir reiðiskast Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Martin og félagar burstuðu botnslaginn Fimm töp í röð hjá Elvari og félögum Versta frumraun í úrvalsdeild? Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Selfoss fær leikmann sem hefur spilað meira en hundrað NBA leiki „Sást frekar bersýnilega að það er ekki mikið sjálfstraust í liðinu“ „Valsararnir voru bara betri“ „Við þurfum að girða okkur í jólafríinu“ Enn eitt tapið og Martin í minna hlutverki en vanalega Uppgjörið: Valur - Tindastóll 89-80 | Meistararnir upp úr fallsæti „Fyrirgefðu að ég var ekki pabbinn sem þú vildir að ég værir“ Körfuboltakvöld í beinni frá Minigarðinum „Nánast afsökuðu meðdómara sinn“ „Setjið stóra mynd af honum á skjáinn og leyfið fólki að horfa“ „Spiluðum glimrandi vel í sókn“ Uppgjörið: Keflavík - Þór Þ. 105-86 | Keflavík fór illa með Jordan-lausa Þórsara „Við þurfum bara að finna lausnir og bæta okkar leik“ Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 90-100 | Hilmar Smári í ham Uppgjörið: Álftanes - Höttur 89-92 | Ótrúleg endurkoma hjá Hetti „Leikurinn þróaðist eins og við hefðum viljað að hann þróist“ Uppgjörið: KR - Grindavík 120-112 | KR fór með sigur úr framlengingu gegn fáliðuðum Grindvíkingum Thelma og Tryggvi best í fyrsta sinn Hornets gaf dreng PlayStation 5 en tók gjöfina síðan til baka Pippen stríddi dómurunum á NBA leik Ho You Fat vill spila áfram á Íslandi: „Ég er að skoða hvað er í boði“ Þorleifur: Þetta er ákveðin skita Uppgjörið: ÍR - Haukar 93-96 | Haukar enduðu sigurgöngu ÍR Sjá meira
Uppgjörið: KR - Grindavík 120-112 | KR fór með sigur úr framlengingu gegn fáliðuðum Grindvíkingum