Geir fyrstur í vitnastúku á mánudag 3. mars 2012 12:45 Aðalmeðferð í Landsdómsmálinu hefst á mánudag. Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sakborningur, verður fyrstur í vitnastúku í málinu á mánudag.
Aðalmeðferð í Landsdómsmálinu hefst á mánudag. Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sakborningur, verður fyrstur í vitnastúku í málinu á mánudag. Samkvæmt áætlun á Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra í aðdraganda hrunsins, einnig að bera vitni þann dag. Það hvort Ingibjörg Sólrún beri vitni á mánudag veltur á því hvort hún nái til landsins í tæka tíð, en hún starfar sem yfirmaður Un Women í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Fram kemur í Fréttablaðinu í dag að stefnt sé að því að alls sex vitni verði kölluð fyrir á þriðjudag. Fyrst eiga fjórir ráðherrar úr ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, sem Geir Haarde veitti forstöðu fram í febrúar 2009, að setjast í vitnastúkuna. Þeir eru Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, sem var viðskiptaráðherra, Össur Skarphéðinsson sitjandi utanríkisráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Óvissa er þó um að Árni verði kominn til landsins, en hann starfar sem aðstoðarframkvæmdastjóri Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna í Róm á Ítalíu. Í kjölfarið mun Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands og núverandi aðstoðarseðlabankastjóri, bera vitni. Að því loknu mun Davíð Oddsson, sem var formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands frá september 2005 og fram í febrúar 2009, setjast í vitnastúkuna. Alls er búist við því að á sjötta tug vitna verði kölluð fyrir í málsmeðferðinni, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Landsdómur vísaði tveimur ákæruliðum í Landsdómsmálinu frá í október síðastliðnum. Eftir standa fjórir ákæruliðir og mun efnisdómur ganga um þá.
Landsdómur Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira