Nordsjælland fyrsta danska liðið til að spila á gervigrasi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2012 19:15 Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Danska úrvalsdeildarliðið FC Nordsjælland hefur ákveðið að skipta grasvelli sínum út fyrir gervigras en heimavöllur liðsins, Farum Park, verður orðinn upphitaður gervigrasvöllur í sumarlok. Nordsjælland hefur fengið leyfi danska knattspyrnusambandsins til að spila leiki sína á gervigrasi frá og með tímabilinu 2012-13. Nordsjælland-liðið verður þá fyrsta danska liðið sem spilar heimaleiki sína á gervigrasi. Þeir fylgja nú í fótspor margra félaga í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi. Ekki má heldur gleyma Íslandi en Stjarnan hefur spilað á gervigrasi siðustu árin. Gervigrasvöllurinn mun kosta um níu milljónir danskra króna sem gera rúmar 200 milljónir íslenskra króna. Félagið mun borga þrjár milljónir en Furesö-sveitarfélagið mun borga stærsta hlutann af kostnaði vallarins. Kjartan Henry Finnbogason, Kristinn Steindórsson og Jón Daði Böðvarsson æfðu allir með danska liðinu í vetur en enginn þeirra samdi við liðið. FC Nordsjælland er eins og er í 2. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og í harðri baráttu við Íslendingaliðið FC Kaupmannahöfn um danska meistaratitilinn.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Mátti ekki tefla í gallabuxum og hættir keppni á heimsmeistaramóti Sport Harmur hrokagikksins Haaland Enski boltinn Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Enski boltinn Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Fótbolti Gary sem stal jólunum Enski boltinn Tugmilljónakostnaður bíður Víkinga Fótbolti „Ég er einum heimsmeistaratitli frá því að jafna ferilinn hans“ Sport Hákon kom inn á og hélt hreinu í fyrsta úrvalsdeildarleiknum Fótbolti Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Hákon 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi Fótbolti Fleiri fréttir Atalanta missteig sig eftir ellefu sigra í röð Sara Björk jafnaði tvisvar fyrir Al-Qadisiya Cecilía í liði ársins Inter á toppinn eftir sigur á Sardiníu „Vonandi færir nýja árið okkur titla“ Ráku annan þjálfarann á tímabilinu Salah, Son og De Bruyne gætu farið frítt næsta sumar Gæti þurft að fylla vörnina af miðjumönnum Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Saka búinn í aðgerð og verður frá í meira en tvo mánuði Tugmilljónakostnaður bíður Víkinga Hákon 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi Hákon kom inn á og hélt hreinu í fyrsta úrvalsdeildarleiknum Ronaldo segir að storminn muni lægja undir stjórn Amorim Skytturnar aftur upp í annað sæti eftir sigur gegn nýliðunum Enn eitt skráningarvesenið hjá Börsungum Veit að starfið gæti verið í hættu ef liðið fer ekki að vinna Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Emilía til Leipzig Skilaboð frá Klopp minntu hann á áfangann: „Við elskum hann“ „Ég var að skjóta“ Víkingur má ekki spila í Kópavogi og leitar vallar erlendis Harmur hrokagikksins Haaland Eftirmaður Amorims rekinn eftir átta leiki City ætlar að kaupa í janúar Gary sem stal jólunum Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Ættingi Endricks skotinn til bana Sjá meira