Elín Metta með þrennu í sigri Vals á KR | Búin að skora 6 mörk í 2 leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2012 21:55 Elín Metta Jensen, til vinstri, í Evrópuleik með Val síðasta haust. Mynd/Pjetur
Hin 16 ára gamla Elín Metta Jensen skoraði þrennu í 5-0 sigri Vals á KR í Reykjavíkurmóti kvenna í fótbolta en leikurinn fór fram í Egilshöllinni í dag. Rakel Logadóttir skoraði hin tvö mörkin. Þetta er önnur þrenna Elínar í röð en hún skoraði einnig þrjú mörk í 5-0 sigri á Fjölni á dögunum. Elín Metta gerði fyrsta markið af stuttu færi á 25. mínútu eftir fyrirgjöf frá Rakel Logadóttur. Rakel skoraði síðan sjálf sex mínútum síðar með viðstöðulausu skoti úr teignum eftir fyrirgjöf Katrínar Gylfadóttur. Elín Metta skoraði síðan þriðja markið tveimur mínútum fyrir hálfleik þegar hún skoraði af öryggi úr víaspyrnu sem hún fiskaði sjálf. Kristín Ýr Bjarnadóttir leyfði stelpunni að taka spyrnuna. Rakel skoraði fjórða markið í upphafi seinni hálfleiks eftir stungusendingu frá Laufeyju Björnsdóttur og fimmtán mínútum fyrir leikslok skoraði Elín Metta síðan þriðja mark sitt og fimmta mark Vals. Elín Metta fékk þá laglega stungusendingu frá Berglindi Rós Ágústsdóttur sem er einmitt fædd árið 1995 eins og hún. Leikurinn var í beinni útsendingu á Sporttv og má sjá öll mörkin með því að smella hér.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira