Valskonur unnu í Hólminum | Úrslitin í kvennakörfunni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2012 20:56 Melissa Leichlitner lék vel í kvöld. Mynd/Anton
Keflavík og Njarðvík bættu stöðu sína í tveimur efstu sætunum Iceland Express deildar kvenna í kvöld og KR komst upp í 3. sætið eftir átta sigur á Hamar í Hveragerði. Valskonur ætla að byrja árið vel því þær fóru í Stykkishólm og unnu 15 stiga sigur á Snæfell.Keflavík vann þrettán stiga sigur á Fjölni, 82-69, en lenti í smá vandræðum þrátt fyrir draumabyrjun. Keflavík byrjaði frábærlega og komst í 13-2 og 22-9 í fyrsta leikhlutanum en var 26-18 yfir við lok hans. Fjölnir vann annan leikhlutann 29-21 og var einu stig yfir í hálfleik, 48-47. Þriðji leikhlutinn var mjög jafn en Keflavík leiddi 60-57 fyrir lokaleikhlutann. Keflavíkurliðið var síðan mun sterkara í lokaleikhlutanum og vann öruggan sigur. Jaleesa Butler var með 20 stig og 17 fráköst en hin unga Sara Rún Hinriksdóttir bætti við 19 stigum og 13 fráköstum. Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 17 stig og gaf 10 stoðsendingar og Birna Valgarðsdóttir var með 16 stig.Njarðvíkurkonur voru aldrei í vandræðum á móti Haukum í Ljónagryfjunni og unnu að lokum 17 stiga sigur, 87-70. Njarðvík komst í 7-1 og 16-7 í upphafi leiks og var með 23 stiga forskot í hálfleik, 48-25. Lele Hardy og Shanae Baker-Brice skoruðu báðar 20 stig fyrir Njarðvík og Erna Hákonardóttir var með 12 stig. Jence Rhoads skoraði 27 stig fyrir Hauka.KR vann öruggan átta stiga sigur á botnliði Hamar í Hveragerði, 75-67. KR komst í 20-8 í upphafi leiks, var 42-30 yfir í hálfleik og með 19 stiga forskot, 59-40, fyrir lokaleikhlutann. Hamar minnkaði aðeins muninn í fjórða leikhluta en sigurinn var aldrei í hættu. Erica Prosser skoraði 22 stig fyrir KR og Margrét Kara Sturludóttir var með 14 stig, 21 frákast og 5 stoðsendingar. KR komst upp í 3. sæti deildarinnar með þessum sigri.Valskonur fóru í Hólminn og unnu þar fimmtán stiga sigur á Snæfelli, 87-72, en Snæfell var búið að vinna 6 af 7 heimaleikjum sínum í vetur. Valur telfdi fram nýrri bandarískri stelpu í leiknum, Lacey Simpson, sem spilaði lítið vegna villuvandræða en Melissa Leichlitner fór hinsvegar á kostum og skoraði 26 stig. Valur var 29-26 yfir eftir fyrsta leikhluta og með sex stiga forskot í hálfeik, 47-41 en liðið stakk síðan af í seinni hálfleiknum. Kristrún Sigurjónsdóttir og María Ben Erlingsdóttir skoruðu báðar 18 stig fyrir Val í kvöld.Úrslit og stigaskor í leikjum kvöldsins:Keflavík-Fjölnir 82-69 (26-19, 21-29, 13-9, 22-12)Keflavík: Jaleesa Butler 20/17 fráköst/5 varin skot, Sara Rún Hinriksdóttir 19/13 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 17/8 fráköst/10 stoðsendingar, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 16/7 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 5, Helga Hallgrímsdóttir 4, Hrund Jóhannsdóttir 1.Fjölnir: Brittney Jones 27/6 fráköst, Katina Mandylaris 17/22 fráköst, Erla Sif Kristinsdóttir 7/8 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 4, Eva María Emilsdóttir 4/5 fráköst, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 4/7 fráköst, Birna Eiríksdóttir 3/6 fráköst, Bergdís Ragnarsdóttir 3. Snæfell-Valur 72-87 (26-29, 15-18, 14-21, 17-19)Snæfell: Kieraah Marlow 26/4 fráköst, Hildur Sigurdardottir 15/8 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir 10/11 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 8, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 4, Björg Guðrún Einarsdóttir 4, Ellen Alfa Högnadóttir 3, Berglind Gunnarsdóttir 2.Valur: Melissa Leichlitner 26/5 fráköst/5 stolnir, Kristrún Sigurjónsdóttir 18/4 fráköst, María Ben Erlingsdóttir 18, Guðbjörg Sverrisdóttir 11/8 fráköst, María Björnsdóttir 4, Þórunn Bjarnadóttir 3, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 3/4 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 2, Lacey Katrice Simpson 2/7 fráköst.Njarðvík-Haukar 87-70 (21-13, 27-12, 26-25, 13-20)Njarðvík: Shanae Baker-Brice 20/5 fráköst/6 stoðsendingar, Lele Hardy 20/12 fráköst, Erna Hákonardóttir 12, Petrúnella Skúladóttir 11, Ólöf Helga Pálsdóttir 9/4 fráköst, Salbjörg Sævarsdóttir 5/5 fráköst, Ína María Einarsdóttir 4, Harpa Hallgrímsdóttir 4, Emelía Ósk Grétarsdóttir 2.Haukar: Jence Ann Rhoads 27/6 fráköst, Íris Sverrisdóttir 18, Gunnhildur Gunnarsdóttir 9, Hope Elam 9/7 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 5, María Lind Sigurðardóttir 2.Hamar-KR 67-75 (10-21, 20-21, 10-17, 27-16)Hamar: Samantha Murphy 25/7 fráköst, Katherine Virginia Graham 23/5 fráköst/6 stoðsendingar/8 stolnir, Marín Laufey Davíðsdóttir 10/5 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 5, Álfhildur Þorsteinsdóttir 2/11 fráköst, Kristrún Rut Antonsdóttir 2.KR: Erica Prosser 22/5 stoðsendingar/7 stolnir, Margrét Kara Sturludóttir 14/21 fráköst/5 stoðsendingar, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 12/6 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 10/6 fráköst/3 varin skot, Hafrún Hálfdánardóttir 6, Anna María Ævarsdóttir 6, Helga Einarsdóttir 5/4 fráköst.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Nýtt heimsmet sett: „Sé því að ég á að geta gert miklu betur“ Sport „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Sport Alexander Máni seldur til Midtjylland Íslenski boltinn Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Körfubolti Mikael orðinn leikmaður Djurgården Fótbolti Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti Fleiri fréttir Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Sjá meira