Lífið

Katy Perry er netsmellur ársins 2010

Þrátt fyrir að síðasta plata Katy Perry, Teenage Dream, hafi ekki farið vel ofan í gagnrýnendur virðast lesendur glamúrtímaritsins People vera sáttir við hana, því þeir völdu hana söngkonu ársins og netsmell ársins á árlegri verðlaunahátíð blaðsins, People's Choice Awards.

Verðlaunin eiga sér 36 ára sögu en það voru þau John Wayne og Barbra Streisand sem hlutu þau fyrst. Með tilkomu netsins kjósa lesendur blaðsins fyrst og fremst gegnum vefsíðu þess. Hvorki meira né minna en 175 milljónir atkvæði voru greidd, sem er metfjöldi.

Kynnir síðustu fimm ára hefur verið bandaríska leikkonan Queen Latifah og á því var engin undantekning þetta árið. Meðal helstu sigurvegara ársins má nefna að The Twilight Saga: Eclipse var valin besta kvikmyndin og leikkona myndanna besta leikkonan.

Johnny Depp hreppti hins vegar nafnbótina besti karlleikari ársins og besti grínleikarinn var kjörinn Adam Sandler. Bestu sjónvarpsþættirnir voru House og Glee og lagið Love the Way You Lie með Rihönnu og Eminem var bæði valið besta lagið og besta myndbandið.

Það skal þó tekið fram að verðlaunin þykja ekki gefa góða vísbendingu um það sem koma skal á Óskarnum eða Golden Globe en meðal annarra verðlaunahafa má nefna að Taylor Swift var kjörin besta kántrísöngkonan og hefur væntanlega getað notað verðlaunin til að hugga sig eftir sambandsslit hennar og Jake Gyllenhaal. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.