Boston sýndi styrk sinn gegn meistaraliði Lakers Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 31. janúar 2011 09:00 Paul Pierce skorar hér gegn Lakers í gær og Ron Artest er til varnar. AP
Fjölmargir spennandi leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gær þar sem að viðureign gömlu stórveldana, Boston Celtics og LA Lakers bar hæst. Meistaraliðið Lakers varð að játa sig sigrað á heimavelli í Los Angeles, 109-96, þrátt fyrir að Kobe Bryant hafi skorað 41 stig. Paul Pierce skoraði 32 stig fyrir Boston og Rajon Rondo gaf 16 stoðsendingar. Bryant var yfirburðamaður í liði Lakers í stigaskorun - þar sem Lamar Odom var næst stigahæstur með 15 stig. Boston tók samtals 43 fráköst og Lakers aðeins 30 Dwayne Wade skorar hér tvö stig gegn Oklahoma í gær.AP Miami Heat vann góðan útisigur gegn Oklahoma City Thunder, 108-103, þar sem Dwayne Wade skoraði 32 stig og tók 9 fráköst í liði Miami. LeBron James gaf 13 stoðsendingar í liði Miami. Kevin Durant, sem var stigahæsti leikmaður NBA deildarinnar á síðustu leiktíð, skoraði 33 stig. Durant er stigahæsti leikmaður deildarinnar í ár og Wade er annar á þeim lista. Fyrir leikinn hafði Miami tapað 5 af síðustu 7 leikjum sínum. Chris Bosh lék á ný með Miami eftir að hafa misst af síðustu fjórum leikjum vegna ökklameiðsla. Hann skoraði 20 stig og tók 7 fráköst. Rússinn Timofey Mozgov fór á kostum í liði New York í 124-106 sigri liðsins gegn Detroit. Miðherjinn, sem er nýliði í deildinni, hefur ekkert leikið með New York á undanförnum vikum en æft af miklum krafti með þjálfarateymi liðsins. Hann virðist hafa haft gott af því þar sem hann skoraði 23 stig og tók 14 fráköst. Úrslit gærkvöldsins: Orlando - Cleveland 103-87 Philadelphia - Denver 110-99 New York - Detroit 124-106 Phoenix - New Orleans 104-102 Lakers - Boston 96-109 Oklahoma - Miami 103-108 Golden State - Utah 96-81
NBA Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Íslenski boltinn Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Sjá meira