Lífið

Jól hjá Kronkron

Hildur Yeoman og Sissa, verslunarstjóri Kronkron, voru að sjálfsögðu mættar.
Hildur Yeoman og Sissa, verslunarstjóri Kronkron, voru að sjálfsögðu mættar. Myndir/Valli
Verslunin Kronkron bauð viðskiptavinum sínum í jólagleði á föstudagskvöldið þar sem jólaútstilling listakonunnar Hildar Yeoman var afhjúpuð. Það voru margir sem nýttu tækifærið og yljuðu sér á heitri jólaglögg og skoðuðu jólafatnað.

Verslunin fagnaði einnig nýju merki í búðinni. Þar fæst nú fatnaður frá hinni grísku Mary Katranzou, sem hefur slegið í gegn með ævintýralegum fatnaði sínum. Katranzou hlotið mikið lof frá því hún steig fram á sjónarsviðið árið 2008. Vinsældir hennar hafa aukist með hverri línu og eru fjölmiðlar sammála um að hér sé ný stjarna fædd.

Valgarður Gíslason ljósmyndari leit við í jólagleðina í Kronkron og smellti af nokkrum myndum af gestum og gangandi. Smellið á myndina til að fletta myndasafninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.