Umhirða og eftirlit tryggir betri endingu 19. október 2011 11:00 N1 er umboðsaðili fyrir viðurkennd merki: Bosch, Banner og Varta.mynd/gva
Ásgeir Örn Rúnarsson, þjónustustjóri hjá N1, segir að með réttu vali, skynsamlegri notkun og góðri umhirðu sé hægt að tryggja að rafgeymar endist betur en ella. Slíkt dragi þar með úr rekstrarkostnaði. „Í fyrsta lagi skiptir máli að velja rétta gerð, annaðhvort startgeymi eða neyslugeymi og svo stærð. Fólk á að byrja að velja sér geyminn út frá tveimur meginþáttum, annars vegar orkunni sem á að nota og tímanum sem orkan er notuð og hins vegar orkunni sem hleður geyminn og tímanum sem hleðslan getur farið fram,“ útskýrir Ásgeir og kemur inn á nokkra þætti sem skipta máli í umhirðu. „Til að tryggja betri endingu rafgeyma verður að huga að nokkrum atriðum. Þess verður að gæta að þeir verði ekki fyrir verulegu hnjaski eða skemmdum. Svo verður að velja rétta gerð hleðslutækis og í viðeigandi stærð, ekki of lítið eða stórt miðað við rafgeyminn. Of lítil eða mikil hleðsla getur sett strik í reikninginn og líka lítil notkun á rafgeymi. Þá verður að passa upp á sýru- og vökvamagn en vanti vökva á geymi hefur hann annaðhvort lekið eða verið ofhlaðinn sem getur gerst þegar hleðslukerfið bilar og spennan (Volt) er of há í lengri tíma.“ Rafgeymar í ökutækjum sem notuð eru sjaldan eða stuttar vegalengdir í einu geta þurft á utanaðkomandi hleðslu að halda. Þá kemur sér vel að eiga viðhaldshleðslutæki sem brugðið er á rafgeyminn í skemmri eða lengri tíma. Að sögn Ásgeirs er mikilvægt að huga að hleðslu og sýrustigi nú þegar tekið er að kólna í veðri, bein tenging sé milli spennu geymis og sýrustigs. „Rafgeymar missa frostþol verulega ef sýrustig fellur niður. Dæmi eru um að fullhlaðinn geymir þoli allt að mínus 70 gráður á Celsíus en afhlaðinn þolir kannski bara mínus tvær til þrjár gráður áður en hann fer að skemmast.“ Til að ganga úr skugga um að ofangreindir þættir séu í lagi segir Ásgeir tilvalið að fara reglulega með rafgeyma í ástandsskoðun hjá viðurkenndum þjónustuaðila. „N1 veitir rafgeymaþjónustu að Funahöfða 13. Þar ráðleggjum við til dæmis við val á geymum og hleðslutækjum,“ segir hann og getur þess að N1hafi umboð fyrir eftirtalin vörumerki í rafgeymum: Bosch, Banner og Varta.
Sérblöð Mest lesið Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Viðskipti innlent Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Viðskipti innlent Telur um dulda launahækkun skrifstofufólks að ræða Viðskipti innlent Davíð Ernir til liðs við Athygli Viðskipti innlent Ísland verði leiðandi í þróun varna og viðskipta á Norðurslóðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent