Færri komast að en vilja 29. september 2011 19:00 engin armbönd Ekki er nóg að eiga armband á Airwaves-hátíðina ætli menn að sjá Sinéad O´Connor í Fríkirkjunni. „
Ég hvet alla sem vilja tryggja sér miða til að mæta snemma, koma með heitt kakó í brúsa og iPodinn og bíða bara spennt,“ segir Kamilla Ingibergsdóttir hjá tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves. Þeir sem vilja tryggja sér miða á tónleika Sinéad O"Connor í Fríkirkjunni 14. október þurfa að mæta klukkan 11 um morguninn í plötubúðina Smekkleysu því ekki er nóg að hafa keypt armband á hátíðina. Aðeins fjögur hundruð miðar eru í boði á tónleikana og því komast færri að en vilja enda O"Connor einn þekktasti flytjandinn í ár. Sömu sögu er að segja af tónleikum Bjarkar í Silfurbergi í Hörpunni 12. og 16. október. Þar duga armböndin ekki og þurfa aðdáendur hennar því að mæta í Smekkleysu á tónleikadag og ná sér í miða. Aðeins 200 miðar eru í boði á hvora tónleika. „Við höfum yfirleitt gert þetta þegar við höfum verið með stærri nöfn í Fríkirkjunni. Við gerðum þetta síðast með Kings of Convenience. Kirkjan tekur bara rúmlega 400 manns og til að koma í veg fyrir brjálaða röð beinum við fólki í Smekkleysubúðina að ná sér í miða,“ segir Kamilla. Sinéad O"Connor hefur verið töluvert í fjölmiðlum að undanförnu vegna undarlegra ummæla á vefsíðu hennar. „Það voru nokkrar Twitter-sendingar sem fólk hafði áhyggjur af. En við höfum verið sannfærð um að hún sé í góðu stuði og verði með „über“ tónleika í Fríkirkjunni.“ - fb
Lífið Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira