Flugmenn gleyma kunnáttunni 1. september 2011 04:00 Ný rannsókn sýnir að nokkur fjöldi flugslysa hefur þegar orðið vegna þess að flugmenn reiða sig um of á sjálfstýringu. nordicphotos/afp
Flugmenn hafa að nokkru misst flughæfni vegna óhóflegrar notkunar sjálfstýribúnaðar. Þeir eiga því stundum í vandræðum með að bregðast við aðstæðum í miðju flugi, þótt þeir hafi flugtak og lendingu á valdi sínu. Slíkt skapar hættu og hefur valdið flugslysum, sem undanfarin fimm ár hafa kostað hundruð manna lífið. Þetta segja bæði flugmenn og flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum. Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna hefur gert á þessu rannsókn, sem staðfestir að flugmenn reiði sig stundum of mikið á sjálfstýribúnað. „Við erum farin að sjá alveg nýja tegund af slysum með þessum fullkomnu flugvélum,“ segir Rory Kay, annar tveggja formanna ráðgjafanefndar bandarísku flugumferðarstjórnarinnar um þjálfun flugmanna. „Við erum að gleyma því hvernig á að fljúga.“ Þessi nýja tegund slysa verður annaðhvort þegar eitthvað í sjálfstýribúnaði bilar eða þegar rangar upplýsingar eru slegnar inn í tölvukerfið sem búnaðurinn notar. Dæmi eru til þess að slíkt slái flugmenn út af laginu og þeir viti ekki hvernig þeir eigi að bregðast við.- gb
Fréttir Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Fleiri fréttir Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Sjá meira