Fjárfest í menntun 31. ágúst 2011 11:00 Starfsfólk Iðunnar tekur vel á móti fróðleiksþyrstum starfsmönnum fyrirtækja.
Iðan fræðslusetur býður nú í auknum mæli upp á fyrirtækjaþjónustu. Rannsóknir hafa sýnt að þeir vinnustaðir sem sinna endurmenntun starfsmanna eru eftirsóknarverðir og þar er starfsánægjan meiri. Hæfara starfsfólk skilar sér einnig í hagkvæmari rekstri," segir Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri Iðunnar. Iðan er endurmenntunarfyrirtæki í iðnaði. Markmið hennar er að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í bíliðnaði, bygginga- og mannvirkjaiðnaði, matvæla- og veitingageirum, málm- og véltækniiðnaði, upplýsinga- og fjölmiðlagreinum og hársnyrtiiðninni. „Það hefur verið hluti af stefnumótun Iðunnar og áherslum í okkar starfi að auka þátt fyrirtækjaþjónustu í okkar starfsemi," útskýrir Hildur Elín og heldur áfram: „Þessi hugmynd gengur út á að hjálpa fyrirtækjum að ná betur sínum markmiðum. Þjónusta okkar felst í að meta fræðsluþörf starfsmanna og styðja þá í að móta sína fræðslustefnu þannig að þær lausnir sem settar eru fram taki mið af þeim markmiðum sem hvert fyrirtæki setur sér." Iðan býður upp á ýmis hnitmiðuð námskeið sem henta önnum köfnum stjórnendum og fjalla um hvernig eigi að stjórna á árangursríkan hátt. En auk þess eru í boði 150 almenn fagtengd námskeið í námsvísi Iðunnar. „Þau getum við öll klæðskerasaumað fyrir hvert fyrirtæki fyrir sig," segir Hildur Elín. Hún segir áhuga fyrirtækja fyrir endurmenntun starfsmanna fara vaxandi. Mörg stór fyrirtæki hafi fræðsludeildir og sinni endur-menntun markvisst og vel. Hins vegar hafi minni fyrirtæki sem ekki hafi yfir að ráða starfsmanna- eða fræðslustjóra átt erfiðara með að standa að skipulögðu og markvissu fræðslustarfi. „Það er þetta gat sem við viljum stíga inn í og hjálpa fyrir-tækjum með," segir Hildur Elín. Hún bendir að lokum á að hjá Iðunni starfi náms- og starfsráðgjafar sem bjóði upp á ókeypis viðtöl fyrir starfsfólk fyrirtækja með aðild að Iðunni. Þar geti fólk farið í starfsferilsgreiningu, mótað persónulega fræðslustefnu og farið í áhugasviðskönnun. Nánari upplýsingar um starfsemi Iðunnar er að finna á idan.is.
Mest lesið Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Afsláttardagar skýri skyndilega hækkun bensínverðs Neytendur Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Sleppir ekki pítsunum þrátt fyrir eitt óhappatilvik Neytendur Strætómiðinn mun kosta 690 krónur eftir áramót Neytendur Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fleiri fréttir Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent