Bieber fær götu nefnda eftir sér 20. ágúst 2011 17:00 Lukkunnar pamfíll Ungur bæjarstjóri í Texas nefndi götu eftir Justin Bieber og bauð hann velkominn í heimsókn hvenær sem er.
Á meðan flestir jafnaldar hans eru að öngla saman fyrir fyrstu fartölvunni hefur gata verið nefnd eftir ungstirninu Justin Bieber. Ellefu ára gömul Texas-mær kom því í gegn þegar hún varð bæjarstjóri í smábænum Forney í Texas í einn dag. Caroline Gonzales sigraði í keppni sem gaf henni kost á að verða bæjarstjóri í einn dag. Hún lét það verða sitt fyrsta verk að nefna eina götu í bænum eftir poppstjörnunni. Í samtali við E! gaf Caroline mjög einfalda ástæðu fyrir athæfi sínu; hún einfaldlega elskaði Justin Bieber. Nafni götunnar var síðan breytt strax daginn eftir en Caroline bauð Bieber velkominn í heimsókn ef hann ætti leið hjá. Bieber er ekki fyrsta poppstjarnan sem fær götu nefnda eftir sér; AC/DC á götu í Melbourne en íbúar Warren í Ohio nefndu heilan dal eftir söngvara Foo Fighters, Dave Grohl. Ekki fer neinum sögum af viðbrögðum bæjarbúa við þessu uppátæki en líklegt má telja að þau hafi verið blendin. Bieber virðist nefnilega eiga sér nóg af hatursmönnum þótt aðdáendurnir séu eflaust fleiri.
Lífið Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fleiri fréttir Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Sjá meira