Tölvudjásn HP í Evrópu 11. ágúst 2011 11:00 Óskar í fallegri OK-búðinni þar sem vöruúrval er ríkulegt og ávallt í samræmi við óskir markaðarins. mynd/stefán
OK-búðin við Höfðabakka er gimsteinn í krúnu HP-búða Evrópu. Þar mætir fólki notalegheit og persónuleg þjónusta við val á framúrskarandi tölvum. Hún er stundum kölluð Ókei-búðin og það er líka alveg ókei," segir Óskar Sæmundsson, rekstrarstjóri OK-búðarinnar, og slær á létta strengi, enda allt með besta móti í OK-búðinni sem er stærsta og glæsilegasta HP-sérverslun Evrópu. „Við ákváðum að opna einstaka tölvuverslun í tilefni 25 ára afmælis Opinna kerfa í fyrra og setja þar með HP-vörumerkið í þann virðingarsess sem það á skilið," bætir Óskar við. Í OK-búðinni finnast lausnir fyrir alla, jafnt einstaklinga sem fyrirtæki. Þar mætast einnig tveir ólíkir tölvuheimar, því ásamt HP-tölvum selur verslunin alhliða tölvu- og afþreyingarbúnað frá Apple. „Tölvunotendur skipast vanalega í tvær fylkingar, eftir því hvort þeir aðhyllast PC-tölvur eða Makka. Því ákváðum við að gera Apple einnig hátt undir höfði og sinna með því ólíkum óskum viðskiptavina," útskýrir Óskar. Þessa dagana er mikið um dýrðir í OK-búðinni því skólavertíð er í hámarki og úr mörgu að velja þegar kemur að úrvali og fágætum kostakjörum. „Nú er afbragðs tími til að kaupa tölvur því úrvalið hefur sjaldan verið meira eða verðið hagstæðara. Við bjóðum þrjá fjölbreytta kosti af mest seldu fartölvum í heimi; ódýrar og einfaldar tölvur sem eru tilvaldar til ritvinnslu, netnotkunar og léttrar Microsoft Office-vinnslu, en einnig sterkbyggðar, flottar skólatölvur úr ProBook-fyrirtækjalínu HP. Þá eru einnig á skólatilboði enn öflugri tölvur, eins og Pavilion með mikið vinnsluminni, stóran harðan disk, öflugt skjákort og Beats-hljóðkerfi, sem þykir afar eftirsóknarvert meðal unga fólksins sem vill hlusta á tónlist í góðum gæðum í tölvunni sinni," upplýsir Óskar. Í bjartri og fallegri OK-búðinni ríkir notalegt og afslappað andrúmsloft. Þar má því skoða tölvur í rólegheitum með ráðagóðum fagmönnum og óþarfi að fara sér óðslega í tölvukaupum. „Við leggjum mikið upp úr persónulegri þjónustu og hér er alltaf nýlagaður kaffisopi og gosdrykkir í boði fyrir viðskiptavini. Verslunin á bakland í stóru fyrirtæki með þrautreyndum sérfræðingum og varla hægt að reka okkur á gat með jafnvel flóknustu spurningum. Við tökum því hlýlega á móti viðskiptavinum og förum vel ofan í saumana á því hvað þeir ætla að nota tölvur sínar í, því okkur finnst mikilvægt að hver og einn fái réttu vélina til þeirra starfa sem hann ætlar sér með hana," segir Óskar.
Mest lesið Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Steinhissa á MR og rifjar lúmskt upp sjónvarpsleysið á fimmtudögum Atvinnulíf Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Viðskipti innlent Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Telur um dulda launahækkun skrifstofufólks að ræða Viðskipti innlent Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Viðskipti innlent Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Viðskipti innlent Fleiri fréttir KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent