Fréttir úr sortanum Bergsteinn Sigurðsson skrifar 24. maí 2011 06:00 Ógæfu Íslands verður allt að vopni, æpti ég upp yfir mig í gær þegar ég horfði á fréttir úr sortanum á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni. „Fyrst hrunið með tilheyrandi kaupmáttarrýrnun, skattahækkunum og atgervisflótta.Höfum við ekki fengið nóg?" Konan mín leit á mig. „Við? Bíddu, hefur þetta eldgos eitthvað bitnað beint á okkur, frekar en þorra íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem fylgjast með úr öruggri fjarlægð?" Ég reyndi að malda í móinn. „Ja, við þurfum nú að loka gluggunum hjá okkur, og það var aska á hnakknum á hjólinu mínu í morgun; svo er þunglyndislegt, grátt öskumistur yfir borginni og ég kemst ekki út að hlaupa í dag því heilbrigðisyfirvöld vara fólk að erfiða mikið utandyra." „Eru þetta einu beinu áhrifin sem gosið hefur haft á þig?" spurði hún á móti. „Er búfénaðurinn þinn að drepast meðan þú ert að keppast við að koma honum í öruggt skjól?" „Nei," muldraði ég. „Er bleikjueldið þitt að fyllast af hræjum?" „Nei." „Sérðu handa þinna skil?" Ég leit í gaupnir mér og kinkaði kolli. „Nærðu andanum án erfiðleika?" Ég dæsti til samþykkis. „Hefðirðu hvort eð er farið út að hlaupa út í þessum kulda?" „Já," fullyrti ég með tóni sneyddum öllu því sem kalla mætti sannfæringu. „Sumsé,"hélt hún áfram, „heildaráhrifin sem eldgosið í Grímsvötnum hefur haft á þig fram að þessu er að þú lokaðir nokkrum gluggum og straukst rykskán af reiðhjólahnakki." „Ekki gleyma þunglyndislegu öskumistri," bætti ég við og uppskar augnaráð með annars konar meðaumkun en þeirri sem ég var að fiska eftir. „Og finnst þér þetta sambærilegt við það sem fólkið fyrir austan fjall þarf að fást við?" „Ógæfu Íslands verður allt að vopni," endurtók ég og steytti hnefa. „Skattar, kaupmáttur, fólksflótti, eldgos. Allt leggst á eitt. Geturðu ímyndað þér hvað við töpum mörgum gistinóttum." „Ert þú nú allt í einu orðinn einhver ferðaþjónustubóndi?" svaraði hún. „Það er nú bara ekkert svo fráleit hugmynd," fnæsti ég og gjóaði augunum á lopapeysuna mína á nálægu stólbaki og kjölinn á Njálu í bókahillunni. „Þú áttar þig á því," hélt hún áfram, „að í stað þess að finna til hluttekningar með þeim sem glíma við öskuna ertu að búa til tengingu milli efnahagsmála og gossins til þess eins að fóðra eigin sjálfsvorkunn; þú barmar þér yfir óförum sem aðrir þurfa að glíma við." „Ógæfu Ísl…" reyndi ég að árétta í síðasta sinn en var orðinn einn í stofunni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Þegar enginn lætur vita - ofbeiting laga og kerfisblinda Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Má bjóða þér meiri forræðishyggju, Lára? Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Karlmenn sem ógna landi og þjóð Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Hvenær er komið nóg? Vilhelm Jónsson Skoðun Frá læknamistökum til kerfisbaráttu - tryggingarfélag vill að ríkið borgi fyrst Bryndís Gyða Michelsen Skoðun Erum við komin þangað að fyrirtækin hugsa um börnin okkar? Halldóra Björk Þórarinsdóttir ,Freydís Aðalbjörnsdóttir Skoðun Grunnþjónusta fyrst og svo allt hitt……er flotgufa forgangsmál? Katrín Magnúsdóttir Skoðun Evrópusambandið og öryggi Íslendinga Haraldur Ólafsson Skoðun Var einhver stunginn? – Nýjasti fasti liðurinn í boði ráðaleysis Davíð Bergmann Skoðun Samgöngur þurfa jafnvægi, ekki skotgrafir Þórir Garðarsson Skoðun
Frá læknamistökum til kerfisbaráttu - tryggingarfélag vill að ríkið borgi fyrst Bryndís Gyða Michelsen Skoðun
Erum við komin þangað að fyrirtækin hugsa um börnin okkar? Halldóra Björk Þórarinsdóttir ,Freydís Aðalbjörnsdóttir Skoðun
Frá læknamistökum til kerfisbaráttu - tryggingarfélag vill að ríkið borgi fyrst Bryndís Gyða Michelsen Skoðun
Erum við komin þangað að fyrirtækin hugsa um börnin okkar? Halldóra Björk Þórarinsdóttir ,Freydís Aðalbjörnsdóttir Skoðun