Fleiri búnir að skrifa undir núna en í fjölmiðlamálinu 2004 Þorbjörn Þórðarson skrifar 16. febrúar 2011 18:59
Forsetinn fékk lög vegna nýrra Icesave-samninga til undirritunar í dag, en tveir þriðju hlutar Alþingis samþykktu frumvarp vegna samninganna í dag. Fleiri hafa nú skrifað undir áskorun til forsetans en sumarið 2004 þegar forsetinn beitti synjunarvaldi í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. Við upphaf þingfundar í dag komu til afgreiðslu fjórar breytingartillögur við frumvarpið.Fyrst tillaga Þórs Saari þingmanns Hreyfingarinnar um að lög vegna nýrra Icesave-samninga taki ekki gildi fyrr en að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu og önnur tillaga sama efnis frá Pétri Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, þær voru báðar felldar, en tveir stjórnarþingmenn greiddu atkvæði með þeim, þau Lilja Mósesdóttir og Ásmundur Einar Daðason. Þá var tillaga Höskuldar Þór Þórhallssonar um að ekki bæri að greiða hærri fjárhæð en var í Tryggingarsjóði innistæðueigenda við upphaf hrunsins ef úr því fengist skorið að ríkisábyrgð gildi ekki, felld með miklum meirihluta atkvæða. Þór Saari lagði aðra breytingartillögu fram um að ríkisstjórnin beitti sér fyrir því að endurheimta fé sem safnaðist á Icesave-reikningunum og láta þá sem báru ábyrgð á reikningunum bera tjón vegna þeirra. Þessi tillaga var einnig felld m.a á þeirri forsendu að löggjafinn hefði þegar gripið til ráðstafana vegna þessa. Að þessu loknu hófst atkvæðagreiðsla um frumvarpið óbreytt. „Það er siðaðra manna háttur að leysa deilumál, ef það er hægt, með samkomulagi. Menn verða stórir af því að ljúka málum með samkomulagi en ekki af því að halda tilgangslausu stríði áfram, stríðsins vegna," sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu. „Það er orðið löngu tímabært að leiða til lykta þetta hörmulega mál sem klofið hefur þjóðina í fylkingar, spillt samskiptum okkar við umheiminn og valdið miklum töfum í efnahagslegri endurreisn landsins," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.Hafa engan rétt á því að ljúga að þjóðinni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, greiddi atkvæði með frumvarpinu og gagnrýndi harkalega málflutning þeirra sem sögðu áhættulaust að hafna þeim samningum sem nú lægju fyrir. „Ég hef komist að skýrri niðurstöðu en þeir sem eru annarrar skoðunar hafa ekkert leyfi til að stíga hér upp og fullyrða við íslensku þjóðina að við sleppum undan öllum skuldbindingum með því að láta reyna á réttarstöðu okkar. Það er rangt, það er falsmálflutningur og þingið á að hefja sig upp yfir slíka hluti í jafn alvarlegu máli og við erum að ræða hér," sagði Bjarni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var samkvæmur sjálfum sér og sagði nei. Fátt kom á óvart í atvæðagreiðslunni, þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem lýst höfðu yfir andstöðu við frumvarpið greiddu atkvæði gegn því, eins og Sigurður Kári Kristjánsson og Birgir Ármannsson. Þingmenn Hreyfingarinnar sögðu jafnframt nei og meirihluti Framsóknarmanna. Frumvarpið var hins vegar samþykkt með auknum meirihluta. Fjörutíu og fjórir greiddu atkvæði með því, sextán voru á móti og þrír þingmenn sátu hjá. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagðist ekki vilja taka við neinum hamingjuóskum vegna þessarar niðurstöðu, en sagði það vissulega létti að málið hefði verið afgreitt. „Aukinn meirihluti Alþingis, samkvæmt skilgreiningu í okkar stjórnarskrá og annarra ríkja, er þegar tveir þriðju hlutar atkvæða þeirra sem afstöðu taka eru með máli. Þannig að þetta er mjög afgerandi afgreiðsla Alþingis og það hlýtur að skipta máli í framhaldinu," sagði Steingrímur J. við fréttastofuna þegar niðurstaðan lá fyrir og ekki mátti skilja orð hans öðruvísi en að þetta hlyti að hafa þýðingu fyrir forsetann þegar hann tæki ákvörðun í málinu um staðfestingu eða synjun laganna.Á fjórða tug þúsunda skrifað undir Á sjötta tímanum í dag höfðu rúmlega 34 þúsund skrifað undir áskorun til forsetans um að synja lögunum staðfestingar. Það eru fleiri en skrifuðu undir áskorun vegna fjölmiðlalaganna sumarið 2004 þegar forsetinn beitti synjunarvaldi í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. Óttastu að forsetinn vísi þessu til þjóðarinnar? „Ég ætla ekkert að tjá mig um það. Ég hef haft þá samskiptareglu. Það verður svo í hans höndun, en hann fær málið mjög fljótlega til sín," sagði Steingrímur, en forsetinn fékk lögin afhent í dag.
Icesave Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Sjá meira