Lögreglan vill fá frekari upplýsingar um félagaskipti Veigars Páls Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. nóvember 2011 12:30
Lögreglan í Osló hefur óskað eftir því að fá að vita hvers konar viðskipti áttu sér stað þegar að Veigar Páll Gunnarsson var seldur frá Stabæk til Vålerenga. Leiði það til sakfellingar gætu forráðamenn félaganna endað í fangelsi. Ítrekað hefur verið fjallað um málið en Vålerenga keypti Veigar Pál frá Stabæk fyrir eina milljón norskra króna. Með í kaupunum fylgdi kaupréttur á fimmtán ára leikmanni sem var metinn á fjórar milljónir. Með því sparaði Stabæk sér að greiða franska félaginu Nancy tvær og hálfa milljón króna sem þeir hefðu þurft að gera hefði Veigar Páll farið á fimm milljónir. Á endanum fékk Nancy bara hálfa milljón. „Við höfum fylgst með því sem hefur gerst frá hliðarlínunni, bæði í fjölmiðlum og annars staðar," sagði fulltrúi lögreglunnar í samtali við norska fjölmiðla í gær. „Við viljum meina að nú sé rétti tímabpunkturinn til að fá að vita almennilega hvað gerðist í þessu máli," bætti hún við en lögreglan hefur farið fram á greinagerð frá félögunum tveimur. „Við viljum vita hvort að norsk refsilög hafi verið brotin. Út frá greinagerðinni verður ákveðið hvort að formleg rannsókn verði sett af stað. Verði komist að því að um svik sé að ræða er það vitanlega ekki smávægilegt brot," bætti hún við.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Enski boltinn Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Enski boltinn Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Enski boltinn Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic Körfubolti City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Enski boltinn Engin bikarþynnka hjá Haukum Handbolti Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Handbolti „Það var í raun ekkert merkilegt, ég var ekkert að æsa mig“ Sport Fleiri fréttir Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Orri á leið í bikarúrslitaleik Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Sonur Fletchers í sex leikja bann fyrir hómófóbísk ummæli Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Meinað að selja miða á mikilvægan útileik gegn Liverpool Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Greiða skaðabætur vegna fjarveru Messi Myndband af Rodrygo að nudda hné Ronaldo fær nýja þýðingu Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Toppbaráttan: Árlegi City-skriðþunginn og brúðarmærin sem vill verða brúður Gleði og sorg í Bítlaborginni í gærkvöldi: Sjáðu mörkin Liverpool setti afar svekkjandi met Gullit er hættur að horfa á fótbolta Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Börsungar úr leik þrátt fyrir öruggan sigur í kvöld Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Everton tengir saman sigra og Sunderland hafði betur gegn Leeds United Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Beta byrjar undankeppni HM á sigri gegn Ísrael Uppgjörið: Spánn - Ísland 3-0 | Spænska liðið sýndi mátt sinn og megin á köflum England hitaði upp fyrir leik gegn Íslandi með stórsigri Sjá meira