Guardiola: Ég mun aldrei lofa því að Barcelona vinni titla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. september 2011 19:00 Pep Guardiola, þjálfari Barcelona. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það eru flestir tilbúnir að leggja mikið undir að Barcelona vinni stóru titlana á þessu tímabili en þjálfarinn Pep Guardiola vill þó ekki lofa neinu. Barcelona hefur unnið 12 af 15 titlum í boði síðan að þessi fertugi Spánverji tók við Barcelona-liðinu haustið 2008. „Ég mun aldrei lofa titlum og það væri ósköp eðlilegt þótt að við myndum ekki vinna neitt. Það eina sem ég get lofað er að liðið verði spili sinn fótbolta," sagði Pep Guardiola. Barcelona liðið hefur nú gert tvö jafntefli í röð, fyrst á moti Real Sociedad í spænsku deildinni um síðustu helgi og svo á móti AC Milan í Meistaradeildinni í vikunni. Börsungar hafa verið að glíma við þó nokkur meiðsli að undanförnu. Fyrirliðinn Carles Puyol er nýkominn til baka eftir langtíma meiðsli og þeir Gerard Pique, Alexis Sanchez og Andres Iniesta eru allir á meiðslalistanum. „Á síðasta tímabili voru það Jeffren og Bojan en nú eru það Iniesta og Alexis. Þetta er ekkert nýtt fyrir okkur," sagði Guardiola en Barcelona-liðið hefur unnið 135 af 188 leikjum undir hans stjórn og aðeins tapað 17 sinnum á þessum rúmu þremur tímabilum.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira