Frábær sigur hjá Þór/KA gegn Breiðablik í markaleik Kolbeinn Tumi Daðason á Kópavogsvelli skrifar 28. júní 2011 19:27 Tvö mörk Fanndísar dugðu skammt gegn Þór/KA Mynd/Anton
Þór/KA gerði góða ferð í Kópavoginn í dag og náði í þrjú stig með 4-2 sigri á Blikum. Akureyringar voru marki undir þegar hálftími lifði leiks en gáfust ekki upp. Stelpurnar að norðan skoruðu þrjú mörk á tæpum fimmtán mínútum og tryggðu sér sigur í opnum og skemmtilegum leik. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en stelpurnar frá Akureyri nýttu sér töluverðan vind í bakið og voru sterkari framan af. Þær pressuðu Blikastelpurnar hátt uppi á vellinum og voru duglegar að láta vaða á markið þegar þær komust í námunda við vítateig Blika. Fremst í flokki var Rakel Hönnudóttir sem lét boltasækjarana fyrir aftan markið vinna fyrir kaupinu sínu. Hálfleikurinn var fjörugur og færi á báða bóga. Fyrsta mark leiksins kom á 17. mínútu. Þá komst Sandra María Jenssen leikmaður Þórs/KA í góða skotstöðu eftir baráttu í teignum og sendi boltann þéttingsfast neðst í markhornið. Óverjandi fyrir Bryndísi Láru Hrafnkelsdóttur í marki Blika. Liðin skiptust á að sækja en það voru Norðankonur sem fengu betri færi. Fyrst átti Sandra María hörkuskot með vinstri fæti í þverslá og á 34. mínútu átti Mateja Zver skot í stöng. Í millitíðinni fengu Fanndís Friðriksdóttir og Gréta Mjöll Samúelsdóttir prýðisfæri sem ekki nýttust. Á 38. mínútu jöfnuðu Blikar metin. Gréta Mjöll sendi fyrir á Fanndísi sem tók boltann snyrtilega með sér inn fyrir vörnina og lagði hann yfir Berglindi í marki Þórs/KA. Snyrtilegt mark og allt í járnum. Það sem eftir lifði leiks skiptu liðin á að sækja en staðan í hálfleik 1-1. Blikastelpur komu sterkari til leiksí síðari hálfleik. Þórdís Hrönn komst í gott færi eftir fallegt samspil Grétu Mjallar og Fanndísar en Akureyringar náðu að bjarga á síðustu stundu. Á 55. mínútu leiksins náðu Blikakonur forystunni. Aftur var það Gréta Mjöll sem átti fallega sendingu inn fyrir á Fanndísi sem setti boltann í nærhornið. Berglind var þó ekki fjarri því að verja. Skömmu síðar komst Fanndís aftur í ágætis skotfæri en skotið framhjá. Á 62. mínútu átti Manya Makoski frábæra sendingu inn fyrir á Mateju Zver. Bryndís Lára kom út á móti og varði vel. Boltinn hrökk út á völlinn til Mateju sem sendi hann í fyrsta, með vinstri fæti í boga í markið. Virkilega vel gert hjá Makoski. Á tveimur mínútum í síðari hálfleiknum gerðu Norðankonur út um leikinn. Á 73. mínútu fékk Þór/KA aukaspyrnu út við hliðarlínu. Mateja Zver, Slóveninn í liði Norðankvenna sendi þá háann bolta að marki Blika sem Bryndís Lára sló boltann upp í slánna og inn. Klaufalegt hjá Bryndísi í markinu og vont átti eftir að versna hjá Blikum. Rúmri mínútu síðar fékk Manya Makoski boltann ein inn fyrir vörnina gegn Bryndísi sem kom út á móti. Makoski urðu á engin mistök og lagði knöttinn snyrtilega framhjá Bryndísi í markinu. Staðan orðin 4-2 og útlitið gott fyrir Þór/KA. Það sem eftir lifði leiks gerðist fátt markvert og Akureyringar lönduðu stigunum þremur sem virtist fjarlægur draumur þegar hálftími lifði leiks. Viðtöl við leikmenn koma inn síðar í kvöld.Þór/KA gerði góða ferð í Kópavoginn í dag og náði í þrjú stig með x-x sigri á Blikum. Akureyringar voru marki undir þegar hálftími lifði leiks en gáfust ekki upp. Þær skoruðu þrjú mörk á tæpum fimmtán mínútum og tryggðu sér sigur í opnum og skemmtilegum leik. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en stelpurnar frá Akureyri nýttu sér töluverðan vind í bakið og voru sterkari framan af. Þær pressuðu Blikastelpurnar hátt uppi á vellinum og voru duglegar að láta vaða á markið þegar þær komust í námunda við vítateig Blika. Fremst í flokki var Rakel Hönnudóttir sem lét boltasækjarana fyrir aftan markið vinna fyrir kaupinu sínu. Hálfleikurinn var fjörugur og færi á báða bóga. Fyrsta mark leiksins kom á 17. mínútu. Þá komst Sandra María Jenssen leikmaður Þórs/KA í góða skotstöðu eftir baráttu í teignum og sendi boltann þéttingsfast neðst í markhornið. Óverjandi fyrir Bryndísi Láru Hrafnkelsdóttur í marki Blika. Liðin skiptust á að sækja en það voru Norðankonur sem fengu betri færi. Fyrst átti Sandra María hörkuskot með vinstri fæti í þverslá og á 34. mínútu átti Mateja Zver skot í stöng. Í millitíðinni fengu Fanndís Friðriksdóttir og Gréta Mjöll Samúelsdóttir prýðisfæri sem ekki nýttust. Á 38. mínútu jöfnuðu Blikar metin. Gréta Mjöll sendi fyrir á Fanndísi sem tók boltann snyrtilega með sér inn fyrir vörnina og lagði hann yfir Berglindi í marki Þórs/KA. Snyrtilegt mark og allt í járnum. Það sem eftir lifði leiks skiptu liðin á að sækja en staðan í hálfleik 1-1. Blikastelpur komu sterkari til leiksí síðari hálfleik. Þórdís Hrönn komst í gott færi eftir fallegt samspil Grétu Mjallar og Fanndísar en Akureyringar náðu að bjarga á síðustu stundu. Á 55. mínútu leiksins náðu Blikakonur forystunni. Aftur var það Gréta Mjöll sem átti fallega sendingu inn fyrir á Fanndísi sem setti boltann í nærhornið. Berglind var þó ekki fjarri því að verja. Skömmu síðar komst Fanndís aftur í ágætis skotfæri en skotið framhjá. Á 62. mínútu átti Manya Makoski frábæra sendingu inn fyrir á Mateju Zver. Bryndís Lára kom út á móti og varði vel. Boltinn hrökk út á völlinn til Mateju sem sendi hann í fyrsta, með vinstri fæti í boga í markið. Virkilega vel gert hjá Makoski. Á tveimur mínútum í síðari hálfleiknum gerðu Norðankonur út um leikinn. Á 73. mínútu fékk Þór/KA aukaspyrnu út við hliðarlínu. Mateja Zver, Slóveninn í liði Norðankvenna sendi þá háann bolta að marki Blika sem Bryndís Lára sló boltann upp í slánna og inn. Klaufalegt hjá Bryndísi í markinu og vont átti eftir að versna hjá Blikum. Rúmri mínútu síðar fékk Manya Makoski boltann ein inn fyrir vörnina gegn Bryndísi sem kom út á móti. Makoski urðu á engin mistök og lagði knöttinn snyrtilega framhjá Bryndísi í markinu. Staðan orðin 4-2 og útlitið gott fyrir Þór/KA. Það sem eftir lifði leiks gerðist fátt markvert og Akureyringar lönduðu stigunum þremur sem virtist fjarlægur draumur þegar hálftími lifði leiks. Viðtöl við leikmenn koma inn síðar í kvöld.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira