Kristín Ýr hetja Valskvenna - Grindavík, FH og KR líka áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2011 18:15 Kristín Ýr Bjarnadóttir. Mynd/Stefán
Valskonur slógu Breiðablik út úr bikarnum þriðja árið í röð með því að vinna 1-0 sigur í leik liðanna í 16 liða úrslitum Valitor-bikars kvenna sem fram fór á Kópavogsvellinum í dag. Grindavík, FH og KR komust einnig áfram í átta liða úrslitin í dag. Valsliðið hefur unnið bikarinn undanfarin tvö ár og var að vinna sinn áttunda bikarleik í röð en Valur sló Breiðablik einnig út úr 16 liða úrslitunum á Kópavogsvellinum í fyrra. Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði sigurmark Vals strax á 6. mínútu leiksins og staðan breyttist ekkert þrátt fyrir ágæt færi hjá báðum liðum það sem eftir lifði leiks. Shaneka Gordon skoraði þrennu í fyrri hálfleik í 5-0 sigri Grindavíkur á Fjölni í Grafarvogi en Grindavíkurliðið er stigalaust á botni Pepsi-deildarinnar. Saga Kjærbech Finnbogadóttir og Dernelle L Mascall skoruðu hin tvö mörkin í þessum fyrsta sigri Grindavíkur í sumar. KR lenti í miklum vandræðum með B-deildarlið Selfoss en Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir tryggði Vesturbæjarliðinu sigurinn með því að skora þrennu í leiknum. KR komst í 2-0 og í 4-2 í leiknum. FH-liðið fór á kostum í Kaplakrika og vann 8-0 stórsigur á ÍA í síðasta leik dagsins. Aldís Kara Lúðvíksdóttir og Sigrún Ella Einarsdóttir skoruðu báðar þrennu í leiknum. Bryndís Jóhannesdóttir átti stórleik fyrir FH, skoraði tvö mörk og lagði upp fimm. Stjarnan, Fylkir, ÍBV og Afturelding komust áfram í átta liða úrslitin í gær. Úrslit og markaskorarar í Valitor-bikar kvenna í dag:Fjölnir-Grindavík 0-5 0-1 Shaneka Gordon (3.), 0-2 Saga Kjærbech Finnbogadóttir (25.), 0-3 Shaneka Gordon (38.), 0-4 Shaneka Gordon (44.), 0-5 Dernelle L Mascall (78.).Selfoss-KR 3-4 0-1 Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir (8.), 0-2 Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir (38.), 1-2 Anna Þorsteinsdóttir (60.), 2-2 Anna María Friðgeirsdóttir (54.), 2-3 Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir (75.), 2-4 Freyja Viðarsdóttir (90.), 3-4 Anna Þorsteinsdóttir (90.+1).Breiðablik-Valur 0-1 0-1 Kristín Ýr Bjarnadóttir (6.).FH-ÍA 8-0 1-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir (16.), 2-0 Sigrún Ella Einarsdóttir (42.), 3-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir (45.), 4-0 Bryndís Jóhannesdóttir (47., víti), 5-0 Bryndís Jóhannesdóttir (53.), 6-0 Aldís Kara Lúðvískdóttir (67.), 7-0 Sigrún Ella Einarsdóttir (71.), 8-0 Sigrún Ella Einarsdóttir (87.) Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af vefsíðunni fótbolti.net
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira