Aska fellur víða til jarðar 21. maí 2011 23:19
Aska hefur fallið víða í byggð í nágrenni Vatnajökuls og hefur talsvert verið um öskufall á Kirkjubæjarklaustri og sveitinum í kringum. Einnig hefur orðið vart við öskufall á Höfn í Hornarfirði. Askan er fín og berst til suðausturs. Líkt og Vísir greindi frá fyrr í kvöld hvetja almannavarnir íbúa á svæðinu í nágreni Vatnajökuls að halda sig innan dyra vegna eldgossins í Grímsvötnum sem hófst á sjöunda tímanum í kvöld. Búist er við öskufalli á Austurlandi á morgun.Myndirnar sem fylgja þessari frétt tók Sævar Guðmundsson á Höfn í Hornarfirði.
Helstu fréttir Tengdar fréttir Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. 21. maí 2011 19:40 Gosmökkurinn sést frá Reykjavík Gosið í Grímsvötnum virðist vera mjög öflugt, segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Hann segir að mökkurinn sjáist alla leið frá Reykjavík. 21. maí 2011 22:07 Starfsmenn Vegagerðarinnar bíða átekta Engin ákvörðun hefur verið tekin um að loka vegum vegna eldgossins sem hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli á sjöunda tímanum í kvöld. Starfsmenn starfsstöðva Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornarfirði bíða átekta. "Við fylgjumst með þróuninni,“ sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri í Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við fréttastofu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort loka þurfi vegum eða rjúfa skörð í vegi. 21. maí 2011 21:33 Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:41 Gosmökkurinn er rosa sjónarspil "Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:55 Tengja gosið ekki heimsendaspám Það hljóp aldeilis á snærið hjá gestum á Islandia Hótel á Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. Gestirnir, sem eru frá Hollandi og Frakklandi, auk Íslendinga, höfðu ekki átt von á því að verða vitni að eldgosi þegar þeir pöntuðu sér gistingu. Þeim brá því heldur betur í brún þegar Vatnajökull tók að gjósa um sjöleytið í kvöld. Líklegast er að það séu Grimsvötn sem gjósi, eins og fram hefur komið. 21. maí 2011 20:39 Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum 21. maí 2011 19:06 Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. 21. maí 2011 21:21 Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. 21. maí 2011 19:26 Flogið um Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir gosið Eldgosið í Vatnajökli kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að lenda á eða taka á loft á Keflavíkurflugvelli, segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia. 21. maí 2011 20:53 Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973. 21. maí 2011 20:13 Veginum um Skeiðarársand lokað Veginum um Skeiðarársand hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum og hófst fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 21. maí 2011 21:37 Íbúum bent á að halda sig innan dyra Vegna eldgossins í Grímsvötnum hefur orðið vart við öskufall á Kirkjubæjarklaustri og fleiri stöðum á Suðurlandi. Askan er mjög fín og berst hún til suðausturs. Almannavarnir benta íbúum á svæðinu að halda sig innan dyra og kynna sér bækling um öskufall sem hægt er að nálgast á heimasíðu almannavarna. Bændum er ráðlagt að huga að búsmala allt vestan frá Síðu og austur fyrir Reynivelli. 21. maí 2011 22:21 Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira
Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. 21. maí 2011 19:40
Gosmökkurinn sést frá Reykjavík Gosið í Grímsvötnum virðist vera mjög öflugt, segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Hann segir að mökkurinn sjáist alla leið frá Reykjavík. 21. maí 2011 22:07
Starfsmenn Vegagerðarinnar bíða átekta Engin ákvörðun hefur verið tekin um að loka vegum vegna eldgossins sem hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli á sjöunda tímanum í kvöld. Starfsmenn starfsstöðva Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornarfirði bíða átekta. "Við fylgjumst með þróuninni,“ sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri í Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, í samtali við fréttastofu. Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvort loka þurfi vegum eða rjúfa skörð í vegi. 21. maí 2011 21:33
Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:41
Gosmökkurinn er rosa sjónarspil "Það er rosa sjónarspil að sjá þetta,“ segir Laufey Stefánsdóttir, sem er stödd ásamt fjölskyldu og vinum í sumarbústaðnum sínum á Hellu. Hún segir að gosmökkurinn sjáist mjög vel þaðan. Gos hófst i Vatnajökli rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld eru viðbragðsaðilar á leið í flug á eftir til að greina nánar staðsetningu þess, en langlíklegast þykir að það sé í Grímsvötnum. 21. maí 2011 19:55
Tengja gosið ekki heimsendaspám Það hljóp aldeilis á snærið hjá gestum á Islandia Hótel á Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. Gestirnir, sem eru frá Hollandi og Frakklandi, auk Íslendinga, höfðu ekki átt von á því að verða vitni að eldgosi þegar þeir pöntuðu sér gistingu. Þeim brá því heldur betur í brún þegar Vatnajökull tók að gjósa um sjöleytið í kvöld. Líklegast er að það séu Grimsvötn sem gjósi, eins og fram hefur komið. 21. maí 2011 20:39
Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum 21. maí 2011 19:06
Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. 21. maí 2011 21:21
Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. 21. maí 2011 19:26
Flogið um Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir gosið Eldgosið í Vatnajökli kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að lenda á eða taka á loft á Keflavíkurflugvelli, segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia. 21. maí 2011 20:53
Ekki þörf á fólksflutningum vegna gossins Lögreglan á Hvolsvelli og í Vík fylgist með umferð um Þjóðveg 1 vegna eldgossins í Grímsvötnum, samkvæmt upplýsingum frá Sveini Kristjáni Rúnarssyni yfirlögregluþjóni. Hann segir þó að ekki sé þörf á því að rýma nein hús í nágrenni við Vatnajökul vegna gossins. Aðstæður eru því allt öðruvísi í þessu gosi en var fyrir rúmu ári síðan þegar Fimmvörðuháls og Eyjafjallajökull gusu. Þá urðu mestu fólksflutningar á Íslandi frá þvi í Heimaeyjargosi árið 1973. 21. maí 2011 20:13
Veginum um Skeiðarársand lokað Veginum um Skeiðarársand hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum og hófst fyrr í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 21. maí 2011 21:37
Íbúum bent á að halda sig innan dyra Vegna eldgossins í Grímsvötnum hefur orðið vart við öskufall á Kirkjubæjarklaustri og fleiri stöðum á Suðurlandi. Askan er mjög fín og berst hún til suðausturs. Almannavarnir benta íbúum á svæðinu að halda sig innan dyra og kynna sér bækling um öskufall sem hægt er að nálgast á heimasíðu almannavarna. Bændum er ráðlagt að huga að búsmala allt vestan frá Síðu og austur fyrir Reynivelli. 21. maí 2011 22:21