Birgir Leifur endaði í 25. til 31. sæti í Belgíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2011 16:36 Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd/Arnþór
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, varð í 25. til 31. sæti á Telenet Trophy mótinu í Belgíu sem lauk í dag eftir að hafa leikið lokahringinn á pari vallarins. Birgir Leifur var þarna að keppa á sínu öðru móti á evrópsku Áskorendamótaröðinni en hann lék hringina fjóra á 288 höggum eða á pari vallarins. Birgir Leifur byrjaði ekki vel og var þremur höggum yfir pari eftir fyrsta hring. Hann kom sér aftur inn í mótið með því að spila annan daginn á þremur höggum undir pari. Hann lék síðan tvo síðustu hringina á pari. Birgir Leifur fékk fjóra fugla og fjóra skolla á hringnum í dag en bjargaði parinu með því að fá fugl á lokaholunni. Birgir Leifur varð í 3. sæti á móti á Ítalíu á dögunum og hann hefur einnig fengið boð um að keppa á næsta móti sem fram fer í Austurríki í næstu viku.
Golf Mest lesið Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Handbolti Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Enski boltinn Stórundarleg hegðun O'Sullivans Sport Járnkona sundsins kveður Sport „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Æskuheimili Steve Kerr brann til kaldra kola Körfubolti Fleiri fréttir Gunnlaugur vann en Evrópa tapaði Allt jafnt fyrir lokadaginn Sögufrægur golfvöllur í hættu vegna eldanna í Los Angeles Kylfurnar eftir í Amsterdam en Gunnlaugur nýtur sín meðal þeirra bestu Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira