Keflavíkurkonur í lokaúrslitin í fimmtánda sinn - unnu KR 70-62 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2011 21:00 Pálína Gunnlaugsdóttir og félagar í Keflavík eru komnar í úrslitaeinvígið. Mynd/Valli
Keflavík tryggði sér sæti í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn með átta stiga sigri á KR-konum, 70-62, í DHL-höllinni í kvöld. Þetta er í fimmtánda sinn sem Keflavíkurkonur spila til úrslita um titilinn en janframt í fyrsta sinn síðan 2007 sem KR-liðið fer ekki alla leið í úrslit. Keflavík vann tvo síðustu leiki einvígisins og þar með einvígið 3-1. Keflavík mætir Hamar eða Njarðvík í lokaúrslitunum en þau spila oddaleik í Hveragerði á þriðjudagskvöldið. Keflavíkurkonur voru sterkari í byrjun, komust í 9-2 og voru 24-14 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Keflavík var síðan með 29-19 forystu þegar KR-konur skoruðu 15 stig í röð á rúmum fimm mínútum í öðrum leikhluta og komust í 34-29. Keflavík náði að minnka muninn aftur í tvö stig, 34-32, fyrir hálfleik. KR-liðið skoraði fimm fyrstu stig seinni hálfleiksins og komst í 39-32 og var sjö stigum yfir, 45-38, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af þriðja leikhlutanum. Keflavík skoraði þá níu stig í röð áður en þriggja stiga Sólveigar Gunnlaugsdóttur sá til þess að KR var 48-47 yfir fyrir lokaleikhlutann. Keflavíkurliðið var hinsvegar komið aftur í gang og tók frumkvæðið með því að skora tíu fyrstu stig lokaleikhlutans og komast í 57-48 forystu þegar sex mínútu voru eftir af leiknum. Keflavíkurliðið hélt síðan þeirri forystu og vann að lokum átta stiga sigur. KR-Keflavík 62-70 (14-24, 20-8, 14-15, 14-23)KR: Margrét Kara Sturludóttir 13/10 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 11/5 fráköst, Melissa Ann Jeltema 10/6 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 8, Signý Hermannsdóttir 7, Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir 7, Hafrún Hálfdánardóttir 4, Helga Einarsdóttir 2/7 fráköst.Keflavík: Marina Caran 21, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 14/5 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 13/5 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 11/8 fráköst, Lisa Karcic 8/16 fráköst/3 varin skot, Ingibjörg Jakobsdóttir 3.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Íslenski boltinn