Helgi Jónas: Gleymdum varnarleiknum inn í klefa Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. febrúar 2011 19:20
Helgi Jónas Guðfinsson, þjálfari Grindvíkinga, segir að sínir menn hafi ekki gert neitt að því sem rætt var um í hálfleik er liðið tapaði fyrir KR í úrslitum Powerade-bikarkeppni karla í dag. Leikurinn var afar jafn í fyrri hálfleik en KR-ingar voru fljótir að taka frumkvæðið í þeim síðari og keyra yfir Grindvíkinga. „Það sem gerðist er að varnarleikurinn fór út um dyrnar. Við gleymdum honum inn í klefa og allri þeirri baráttu sem var til staðar í fyrri hálfleik,“ sagði hann í samtali við Vísi en viðtalið við hann má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Við töluðum um að gera ákveðna hluti í hálfleik og svo stíga menn á gólfið í þeim síðari og gerðu ekkert af því.“ KR-ingar voru svo fljótir að gera út um leikinn og settu niður alls átta þriggja stiga skot í seinni hálfleik. „Þegar menn eru komnir fimmtán stigum yfir verða þessi skot pressulaus og því mun auðveldara að fá þau niður en þegar leikurinn er jafn.“ „En KR-ingar spiluðu frábærlega í kvöld og eiga hrós skilið,“ bætti Helgi Jónas við. Grindvíkingar byrjuðu mjög vel í deildinni í haust en hafa verið að gefa eftir á síðustu vikum. „Það var mikill getumunur á liðunum í dag og hugarfarið skiptir líka máli. Ég hélt að menn myndu nota þennan leik til að snúa við blaðinu og menn gerðu það í 20 mínútur. Við héldum að það væri nóg.“
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira