Hefði átt að yfirheyra opinberlega 12. apríl 2010 05:15 Árni Páll Árnason. Mynd/Anton Brink
Óskiljanlegt er að rannsóknarnefnd Alþingis hafi ekki starfað fyrir opnum tjöldum við gerð skýrslu sinnar, sem kemur út í dag. Þetta er mat Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra. „Þessi óþreyja og spenna sem er í samfélaginu núna hefði alls ekki þurft að vera, ef þetta hefði bara verið gert opinbert jafnóðum," segir Árni. Sjálfur mælti Árni með því í ræðu í október 2008 að sú leið yrði farin: „Ég held að erfitt sé að finna mál sem er betur til þess fallið að vera prófsteinn á hið nýja fyrirkomulag sem forsætisnefnd Alþingis hefur kynnt um opna nefndarfundi [...] svo almenningi verði ljóst hvernig þetta gat gerst og allir geti talað þar með hreinskiptum og opnum hætti og ekki sé reynt að draga nokkra dul á hvernig þessi atburðarás varð," sagði hann þá á Alþingi. „Ég varð ekki var við það að nokkur tæki undir þetta í þingumræðum eða annars staðar. En auðvitað hefði verið betra að gera þetta eins og nágrannaþjóðirnar," segir Árni Páll. Samkvæmt lögum um rannsóknarnefndina mátti hún upplýsa um efni hennar að vild áður en sjálf skýrslan kæmi út.- kóþ
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira