Alls ellefu óhöpp á sex vikum 30. nóvember 2010 04:00 á hlemmi Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS, hélt stutt erindi þegar öryggisdögum Strætó og VÍS lauk.
Alls urðu ellefu óhöpp á síðustu sex vikum sem tengd voru ferðum strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu. Að meðaltali verða um tuttugu óhöpp á mánuði hjá Strætó bs. yfir vetrarmánuðina. Öryggisdögum Strætó og VÍS lauk formlega á sunnudag, en þeir stóðu yfir í sex vikur, frá 18. október til 28. nóvember. Markmið átaksins var fyrst og fremst að vekja vegfarendur til umhugsunar um umferðaröryggi en að auki ætluðu strætisvagnabílstjórar að reyna að gera betur í akstri en á sama tímabili í fyrra. Þá urðu 28 óhöpp frá miðjum október fram til nóvemberloka. Í tilkynningu frá Strætó bs. segir að markmiðið hafi náðst örugglega í ljósi þess að einungis hafi ellefu óhöpp orðið. Þó hafi eitt alvarlegt slys orðið meðan á Öryggisdögunum stóð, því ekið var á gangandi vegfaranda síðastliðinn laugardag og hlaut hann innvortis meiðsli. Annars voru flest atvikin minni háttar. „Ég harma öll óhöpp og slys í umferðinni og auðvitað eru ellefu óhöpp á þessu tímabili ellefu óhöppum of mikið,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs. „En meðan við erum að fækka slysum jafnt og þétt er ekki annað hægt en að gleðjast yfir því.“- sv
Fréttir Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar Sjá meira