Lífið

Grátbað um tappa í tónlistarlekann

James Murphy fór á hnén á leynitónleikum í New York.
James Murphy fór á hnén á leynitónleikum í New York.

James Murphy kynnti nýja meðlimi hljómsveitarinnar LCD Soundsystem á leynitónleikum í New York á mánudag. Kapparnir spiluðu ný lög og Murphy grátbað áhorfendur um að deila þeim ekki með heiminum, væru þeir búnir að fá kynningareintök af nýju plötunni, sem kemur út 17. maí.

„Ef þið eruð búin að fá eintak af plötunni og langar að deila henni með heiminum, ekki gera það," sagði hann og kraup meira að segja á kné til að undirstrika mál sitt. Áhorfendurnir 1.500 sem mættir voru á svæðið virtust kunna vel að meta bónina og fögnuðu dátt.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×