Samson fékk viðkvæmar upplýsingar um Landsbankann fyrir kaupinn 12. apríl 2010 10:21 Steingrímur Ari.
Steingrímur Ari Arason sagði sig úr einkavæðingarnefnd á sínum tíma vegna þessa að viðkvæmum upplýsingum var komið til eignarhaldsfélagsins Samson sem síðar keypti Landsbankann. Samson var eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga. Þetta kemur fram í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Kornið sem fyllti mælinn hjá Steingrími Ara var fyrirvarinn sem Samson setti í tilboð sitt um mismunandi mat á útlánum bankans og hugsanlegar afskriftir sem kæmu mögulega til lækkunar á tilboðinu. „[M]ér fannst það ekki bara viðeigandi að ríkið sem minnihlutaaðili, auðvitað sem sagt ráðandi aðili en sem minnihlutaaðili í bankanum sko færi að veita mögulegum kaupanda aðgang að þessum upplýsingum, hugsið ykkur, þetta eru viðkvæmustu upplýsingar sem eru innan bankans, það er staða stórra aðila sem að mögulega þarf að afskrifa. Og hvers vegna? Vegna þess að menn höfðu ekki passað nógu vel upp á það o.s.frv. Þannig að mér fannst þetta í alla staði bara sem sagt fráleitt." Þrátt fyrir andstöðuna við fyrirvarann var Steingrími Ara skýrt frá því að ákvörðun hefði verið tekin og farið yrði í viðræður við Samson eða engan. Í ofangreindri tilvitnun kemur fram að Samson hafi fengið viðkvæmar upplýsingar úr Landsbankanum áður en gengið var til samninga. Steingrímur Ari er í dag forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira