Einkunn Mourinho fyrir frammistöðu sína á árinu: 11 af 10 mögulegum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2010 23:15 José Mourinho, þjálfari Real Madrid. Mynd/Nordic Photos/Getty
Það þarf varla að spyrja af því en José Mourinho kemur fáum á óvart með því að vera einstaklega ánægður með árið sem er að líða. Hann vann þrennuna með Internazionale Milan og hefur gert góða hluti síðan að hann tók við Real Madrid. „Þetta er búið að vera besta árið á ferlinum mínum. Ég myndi gefa sjálfum mér 11 í einkunn af 10 mögulegum," sagði José Mourinho í viðtali á RealMadrid.com. „Ég vann alla titla sem ég keppti um á árinu og við eigum enn góða möguleika á að vinna alla titla með Real Madrid á þessu tímabili. Deildin er enn opin og við erum komnir í 16 liða úrslit í bæði Konungsbikarnum og í Meistaradeildinni," sagði Mourinho og bætti við: „Við vorum líka besta liðið í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þannig að tímabilið er búið að vera fullkomið hingað til," sagði Jose Mourinho. Hann stóðst heldur ekki að skjóta enn einu sinni á eftirmann sinn hjá Internazionale eftir að ítalska liðið tryggði sér Heimsmeistaratitil félagsliða. „Ég er ánægður og stoltur af árangri Inter í Heimsbikarkeppni félagsliða. Það var mikil ánægja að fá að þjálfa þá alveg eins og það er að þjálfa Real madrid. Ég hefði samt haldið að Rafa Benitez myndi þakka mér fyrir að vinna þennan titil nánast fyrir hann en það væri best að spyrja stuðningsmenn Inter Milan hvað þeir halda," sagði Mourinho.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira