Freyr: Stelpurnar eiga skilið að fagna loksins á laugardegi Hjalti Þór Hreinsson skrifar 4. september 2010 19:38 Freyr fagnar um leið og flautað var af í dag. Mynd/HÞH
Freyr Alexandersson var stoltur maður eftir að Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Freyr stýrði liðinu einn annað árið í röð, og í bæði skiptin vann hann tvöfalt með liðið. Freyr var áður aðalþjálfari með Elísabetu Gunnarsdóttur árið 2008 auk þess sem hann var viðloðinn þjálfun liðsins árið 2007. Þetta er í fimmta árið í röð sem Valur verður Íslandsmeistari og það tíunda í sögunni. Þar sem bæði Þór/KA og Breiðablik töpuðu í dag gat Valur orðið meistari og eftir að hafa lent undir eftir nokkrar sekúndur röðuðu þær inn átta mörkum og tryggðu sér titilinn. "Ég átti aldrei von á því að FH ynni Breiðablik, með fullri virðingu fyrir FH. Þetta kom skemmtilega á óvart," sagði Freyr brosmildur. "Eftir að við heyrðum úrslitin var auðveldara að peppa liðið upp í leikinn. Þær fóru inn á með fiðrildi í maganum og skítaglott á vör," sagði Freyr og brosti. "En við vorum búin að leggja leikinn upp og við breyttum engu sérstöku. Þrátt fyrir áfall á fyrstu mínútu gekk upp að klára þetta," sagði Freyr. Framundan er partý hjá liðinu sem fær loksins að fagna á laugardegi. "KSÍ er hrifið af því að hafa lokaleikina á sunnudögum en loksins fær liðið að fagna á laugardagskvöldi, og það eiga þær svo sannarlega skilið," sagði Freyr sem ætlar þó ekki að halda liðspartýið í kvöld. "En ég er hrikalega stoltur af liðinu," sagði Freyr brosandi. Nánar er rætt við Frey í Fréttablaðinu á mánudaginn.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira