Skoðun

Atvinnan skiptir öllu máli

Dagur B. Eggertsson skrifar
Kæri borgarbúi!

Í dag er kosið í Reykjavík.

Kosningabaráttan hefur verið stutt en áherslurnar eru skýrar. Við í Samfylkingunni viljum að borgin beiti sér af fullu afli gegn atvinnuleysinu. Ástæðan er sú að ef atvinnuleysið fær að aukast þá þarf að skera niður þá þjónustu sem borgin veitir og hækka skatta eða gjaldskrár, til dæmis á leikskólum.

Atvinnan er grunnurinn að öllu hinu. Við höfum lagt fram útfærða aðgerðaráætlun sem virkaði í Árósum og í kreppunni miklu í Bandaríkjunum. Við viljum flýta framkvæmdum, leggja áherslu á viðhaldsverkefni við skóla, leikskóla, þjónustumiðstöðvar aldraðra, sundlaugar og uppbyggingu í hverfum borgarinnar. Við verðum verðum að skapa fjölbreytt störf fyrir ungt fólk og koma af stað fjárfestingu. Þannig komum við vinnufúsum höndum til starfa.

Í skólamálum leggjum við áherslu á að stöðva niðurskurðinn og standa vörð um faglegt starf. Vanlíðan stráka er aðkallandi vandamál sem þarf að veita miklu meiri athygli og einnig þarf að tryggja að ekkert barn sé án hollra skólamáltíða vegna fjárhagsstöðu foreldra.

Samfylkingin sættir sig ekki við sístækkandi raðir eftir matargjöfum hjálparstofnana. Við viljum hækka grunnframfærslu til þeirra sem hafa minnst á milli handanna.

Við viljum líka styrkja frístundakort barna svo ekkert barn hrekist úr íþróttum eða æskulýðsstarfi vegna efnahags. Í þriðja lagi þarf af fjölga öruggum valkostum í húsnæðismálum með því að koma upp almennum leigumarkaði í Reykjavík.

Þessi metnaðarfulla stefna er afrakstur hugmyndavinnu undanfarinna missera sem hefur meðal annars farið fram á tugum heimafunda um alla borg og á Reykjavíkurþingi. Allt er þetta nýbreytni í stefnumótun stjórnmálaflokka í borginni.

Kæru kjósendur. Ég hvet ykkur til að kynna ykkur hugmyndirnar sem við berjumst fyrir og veita okkur umboð til að hrinda þeim í framkvæmd. Á framboðslista Samfylkingarinnar er úrvalsfólk sem ég er stoltur af enda góð blanda af endurnýjun og reynslu. Þetta er kraftmikill hópur með mikla þekkingu á verkefnum Reykjavíkurborgar. Ég vona að við fáum þinn stuðning.

Dagur B. Eggertsson.

 




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×