Sturla: Viljum sýna okkar rétta andlit Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. nóvember 2010 16:45 Sturla Ásgeirsson í leik með Val. Mynd/Valli
Sturla Ásgeirsson, fyrirliði Vals, á von á erfiðum leik þegar að liðið mætir Selfossi í fjórðungsúrslitum Eimskipsbikarkeppni karla. Dregið var í hádeginu í dag. „Við spiluðum við þá í deildinni í haust og töpuðum þá. Þeir eru með gríðarlegan sterkan heimavöll og þó svo að Selfyssingar hafa ekki unnið marga leiki hefur enginn átt auðvelt með að sækja sigurinn þangað," sagði Sturla en leikurinn fer fram á Selfossi í byrjun næsta mánðar. „Þetta verður hörkuviðureign. Þessi lið eru með jafn mörg stig í deildinni og því væntanlega hnífjafn leikur. En það er allt hægt í bikarnum," bætti Sturla við. Valsmenn hafa byrjað illa á leiktíðinni en liðið fékk í síðustu viku sín fyrstu stig í deildinni eftir sigur á Aftureldingu í Mosfellsbænum. „Það er gott að hafa bikarkeppnina og vonandi getum við sýnt okkar rétta andlit í henni. Það hafa verið batamerki á liðinu og ég vonast til þess að þetta sé allt að koma hjá okkur og að við förum að hala inn fleiri stigum í deildinni," sagði Sturla. „Það hefur verið betri holning á liðinu í síðustu leikjum og við höfum verið miklu nær andstæðingum okkar en í upphafi leiktíðar. Þetta voru að sjálfsögðu mjög erfiðar vikur enda aldrei gaman að gera ekkert nema að tapa. En vonandi er komin breyting þar á."
Íslenski handboltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira