Lífið

Diktu-menn brosa hringinn

með gullplötur Meðlimir Diktu með gullplöturnar sem þeir fengu úr höndum útgáfufyrirtækisins Kölska fyrir Get It Together.
með gullplötur Meðlimir Diktu með gullplöturnar sem þeir fengu úr höndum útgáfufyrirtækisins Kölska fyrir Get It Together.

„Menn bara brosa hringinn og hafa gaman,“ segir Nonni kjuði, eða Jón Þór Sigurðsson, trommari Diktu. Hljómsveitin hefur fengið gullplötu afhenta fyrir að hafa selt plötu sína Get It Together í yfir fimm þúsund eintökum. Alls hafa sjö þúsund eintök verið framleidd og búast má við því að þau rjúki út eins og heitar lummur á næstunni.

Dikta hefur átt miklum vinsældum að fagna síðan platan kom út í nóvember og hafa lögin From Now On og Thank You slegið rækilega í gegn. Til að þakka fyrir sig heldur Dikta ókeypis klukkutíma tónleika á Nasa í kvöld klukkan 18 og vegna fjölda áskorana verða tónleikarnir opnir öllum aldurshópum. Nonni viðurkennir að sveitin hafi ekki spilað nóg fyrir yngri aldurshópana.

„Við viljum gefa aðeins til baka og þarna getum við slegið tvær flugur í einu höggi,“ segir trommarinn, sem skartar forláta klippingu í anda Idol-dómarans Simons Cowell. „Strákunum fannst þetta eitthvað Simon Cowell-legt. En ég bað um Tom Cruise. Cruise-arinn er flottur. Hann hefur aðeins dalað í seinni tíð en hann á helling inni.“

Haukur Heiðar Hauksson, söngvari Diktu, er rétt eins og Nonni himinlifandi yfir gullplötunni. Hann segist ekki hafa átt von á þessum árangri þegar upptökur á Get It Together hófust. „Ég get alveg sagt það með góðri samvisku að ég átti engan veginn von á því að ég fengi gullplötu upp á vegg. Ég er búinn að finna góðan stað fyrir hana og núna er bara að negla einn nagla og skella henni upp á vegg.“ - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×