Innlent

Skelfing og óðagot í stjórnkerfinu

Óli Tynes skrifar

Athygli vekur við lestur skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hversu mikil skelfing og óðagot ríkti bæði í stjórnkerfinu og hjá fjármálastofnunum þegar menn gerðu sér grein fyrir því að bankakerfið var að hrynja.

Margir þeirra sem gáfu skýrslu fyrir nefndinni höfðu orð á þessu. Dæmi um ringulreiðina er til dæmis sérfræðingahópur forsætisráðherra sem var skipaður fjórða október 2008.

Þegar hópurinn kom út úr stjórnarráðinu eftir fund með starfsmönnum forsætisráðuneytisins uppgötvuðu menn að ekkert lá fyrir um hvar þeir hefðu starfsaðstöðu.

Þeir ákváðu sjálfir að fara í húsakynni Háskólans í Reykjavík þar sem þeir fengu inni. Þeir höfðu heldur engin gögn eða upplýsingar í höndunum og byrjuðu á því að prenta út ársskýrslur bankanna.

Fljótlega var þeim þó fundin aðstaða í Fjármálaeftirlitinu þar sem þeir höfðu betri aðgang að upplýsingum.

Mikið mæddi náttúrlega á Geir Haarde forsætisráðherra og hann virðist hafa tekið málið nærri sér.

Jón Steinsson hagfræðingur við Columbia háskólann í New York kom til landsins að eigin frumkvæði í hrunin eftir að hafa boðið fram starfskrafta sína í rafpósti til Geirs.

Jón gekk á fund Geirs í Ráðherrabústaðnum föstudaginn þriðja október. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir:

-Jón segir að þegar hann hitti Geir hafi hann virst vera á barmi taugaáfalls.

Á einum stað í skýrslunni er vitnað í Jónínu Lárusdóttur ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu:

-Mönnum leið bara ofboðslega illa, ég man eftir því.

Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra segir í skýrslunni:

-Það fattaði enginn fyrir helgina að við værum að fara að sigla inní það að allt bankakerfið væri bara að fara til fjandans. Og við vorum náttúrlega inn á milli skelfingu lostnir þannig, en auðvitað reyndi maður bara að halda ró sinni og stillingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×