Kristján Örn samdi við Hönefoss Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. janúar 2010 09:15 Kristján Örn Sigurðsson er farinn frá Brann.
Kristján Örn Sigurðsson hefur ákveðið að ganga að tilboði nýliða Hönefoss í norsku úrvalsdeildinni og samdi hann við liðið til næstu tveggja ára. Norskir fjölmiðlar fullyrtu í gær að Kristjáni Erni stæði til boða að fá tvær milljónir norskra króna í árslaun hjá félaginu eða rúmar 44 milljónir íslenskra króna. Það fékkst svo staðfest í gærkvöldi að Kristján Örn hefði gengið frá samningum við Hönefoss. „Þetta hefur allt gengið frekar fljótt fyrir sig," sagði hann í samtali við norska fjölmiðla. „Markmið mitt upphaflega var að komast að hjá félagi erlendis og þess vegna beið ég svo lengi með að ganga frá mínum samningsmálum. En þetta gekk ekki eftir að þessu sinni og ég vildi ekki tefla á tvær hættur með því að bíða enn lengur." Kristján Örn lék með Brann frá 2005 fram á síðasta tímabil og varð Noregsmeistari með liðinu árið 2007. Samningur hans við Brann rann út í haust. Spurður um af hverju hann hafi ákveðið að yfirgefa Brann sagði Kristján Örn að honum hafi einfaldlega ekki verið boðinn nýr samningur hjá félaginu. Því neitaði hins vegar Roald Bruun-Hanssen, yfirmaður íþróttamála hjá Brann, í norskum fjölmiðlum í gær.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Breiðablik - Víkingur | Íslandsmeistararnir mæta Bikarmeisturunum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Breiðablik - Víkingur | Íslandsmeistararnir mæta Bikarmeisturunum Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjá meira