Réðst á konu með hnúajárni 2. desember 2010 06:00 Hnúajárn Maðurinn notaði hnúajárn við árásina.
Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega þrítugan karlmann fyrir Héraðsdómi Suðurlands fyrir að ráðast á konu, misþyrma henni og hrinda í baðkar. Þá er maðurinn ákærður fyrir vopnalagabrot og fleira. Það var í lok september á þessu ári sem maðurinn réðst á konuna í heimahúsi. Hann sló hana í höfuðið með hnúajárni svo hún féll í gólfið. Þar sem hún lá sló hann hana ítrekað með handarjaðrinum, með hnefann krepptan um hnúajárnið, bæði í höfuð og líkama. Eftir þetta greip hann um háls hennar og lyfti henni upp að vegg. Þar þrengdi hann svo að öndunarvegi hennar að henni sortnaði fyrir augum. Maðurinn sleppti þá takinu og hrinti henni svo að hún féll niður og lenti ofan í baðkari. Konan hlaut sár, bólgur og mar á höfði og víðs vegar á líkama. Eftir þetta ók maðurinn undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttar þar til lögregla stöðvaði hann við Rauðavatn. Í vasa hans fannst hnúajárnið, svo og amfetamín í bílnum. Konan krefst tæplega 1,6 milljóna króna í skaðabætur.- jss
Fréttir Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Inga segir já Innlent Fleiri fréttir Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Sjá meira