Tímabilið búið hjá Arnóri 21. mars 2009 14:45 Arnór leikur ekki meira með FCK í vetur. Mynd/Birkir Baldvinsson „
Þetta er ansi mikið áfall. Þetta átti ekki að vera mikil aðgerð en þegar ég vakna er mér sagt að staðan hafi verið ansi slæm," sagði landsliðsmaðurinn Arnór Atlason við Vísi áðan en hann leikur ekki meira á þessari leiktíð. Arnór lagðist undir hnífinn í gær og þegar búið var að opna á honum hnéð komu í ljós að hnéð var mun verr farið en menn héldu. Aðgerðin sem hann fór í var því nokkuð stór. „Ég átti að fara í þessa aðgerð í júní en það var lán í óláni að ég skyldi meiðast og þurfa að fara í hana núna. Ef ég hefði bara farið í sumar hefði hnéð verið enn verra," sagði Arnór sem hefur þrátt fyrir meiðslin verið að leika vel fyrir félag sitt, FCK. Akureyringurinn fór í aðgerð á hnénu í Danmörku í nóvember og var talið að hún hefði heppnast vel. Engu að síður var hnéð aftur illa farið og hann leikur því ekki meira í ár. „Ég ligg bara með löppina upp í loft heima hjá mömmu núna enda má ég ekki stíga í fótinn næstu þrjár vikurnar. Ég er ekkert að hugsa um hvenær ég verð kominn aftur á ferðina heldur bara hvenær ég verði orðinn fullkomlega góður. Það er kominn tími á að ná almennilegri heilsu," sagði Arnór sem ætlar að hafa það náðugt heima hjá foreldrum sínum næstu vikuna áður en hann heldur aftur utan til Kaupmannahafnar.
Íslenski handboltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira