Fordæmir kynþáttaníð stuðningsmanna Juventus 20. apríl 2009 10:18 Mario Balotelli var skotmark stuðningsmanna Juventus í gær AFP
Massimo Moratti, forseti Inter Milan, segir að hann hefði tekið lið sitt af velli ef hann hefði orðið vitni að meintri hegðun stuðningsmanna Juventus í toppleik liðanna í ítölsku A-deildinni í gær. Framherjinn ungi Mario Balotelli hjá Inter skoraði mark fyrir lið sitt og fékk að heyra það frá stuðningsmönnum Juventus, sem sungu níðsöngva um uppruna hans og drógu þjóðerni hans í efa. Balotelli er uppalinn í Palermo á Sikiley, en er fæddur í Ghana í Afríku. Hann er fastamaður í U-21 árs liði Ítala. "Ef ég hefði verið í stúkunni á þessum leik, hefði ég á ákveðnum tímapunkti risið úr sæti mínu, gengið niður á völl og kippt liði mínu af velli. Stuðningsmennirnir virtust stoltir af þessari framkomu sinni. Þetta er hræðilegt," sagði Moratti gáttaður í samtali við Gazzetta dello Sport. Það kemur í ljós á morgun hvort Juventus verður refsað fyrir þetta atvik, en sektir vegna kynþáttaníðs á Ítalíu hafa til þessa ekki verið það miklar að nokkurt knattspyrnufélag finni fyrir þeim. Giovanni Cobolli Gigli, forseti Juventus, baðst afsökunar fyrir hönd félagsins í gær og sagði nauðsynlegt að félögin í A-deildinni reyndu að binda enda á kynþáttaníð.
Ítalski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Sjá meira