Mótanefnd KSÍ frestar leik í 2. deildinni vegna svínaflensu Ómar Þorgeirsson skrifar 14. ágúst 2009 18:00 Birkir Sveinsson.
Mótastjórinn Birkir Sveinsson hjá Knattspyrnusambandi Íslands hefur staðfest að leik KS/Leifturs og Hamars í 2. deildinni, sem fara átti fram á morgun, hafi verið frestað vegna veikinda stórs hluta leikmannahóps Hamars. Á þessu stigi hefur mótanefnd KSÍ ekki ákveðið hvenær leikurinn muni fara fram. „Það eru einhverjir leikmenn staðfestir með svínaflensu hjá Hamri en margir veikir og ekki greining komin hjá öllum. Þetta virðist vera svipað tilfelli og hjá Grindavík," segir Birkir. Þetta er í annað skiptið á tveimur dögum sem mótanefnd KSÍ samþykkir frestun á leik vegna veikinda leikmanna en eins og fram hefur komið á Vísi var leik Grindavíkur og ÍBV frestað eftir að leikmenn Grindavíkur veiktust. Þar af hefur verið staðfest að tveir leikmenn liðsins hafi greinst með svínaflensuna. Birkir segir ekki fleiri tilfelli hafa komið inn á borð til sín að svo stöddu en er við öllu búinn. „Eins og staðan er núna hafa engar fleiri beiðnir borist okkur en þessar tvær hjá Grindavík og Hamar en við erum við öllu búnir. Mótanefndin hefur annars ákveðið hvaða forsendur þurfi að liggja að baki því að frestun leikja fáist og það er ef veruleg skörð eru höggvin í leikmannahópa liðanna vegna veikinda," segir Birkir.
Íslenski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira