Zidane: Steven Gerrard er bestur í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2009 10:15 Steven Gerrard sést hér tækla Zinedine Zidane á sínum tíma. Mynd/GettyImages
Zinedine Zidane segir í viðtali við enska slúðurblaðið Sun að Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, sé besti leikmaður í heimi og líkir mikilvægi hans við mikilvægi Claude Makelele hjá Real Madrid á árum áður. „Er Gerrard sá besti í heimi. Hann fær kannski ekki sömu athyglina og þeir Messi og Ronaldo en ég held að hann sé bara sá besti í heimi," sagði Zidane. „Það hefur mikil áhrif á Liverpol-liðið þegar það hefur ekki leikmann eins og Steven Gerrard sem er mótorinn í liðinu," sagði franska goðsögnin við Sun. „Þegar ég var að vinna spænska titla og Evrópumeistaratitla með Real Madrid á sínum tíma þá sagði ég alltaf að Claude Makelele væri mikilvægasti leikmaður liðsins. Það var engin möguleiki fyrir mig, Figo eða Raul að skila hans vinnu til liðsins og það er eins með Gerrard og Liverpool," sagði Zidane. Zidane vill meina að á undan Steven Gerrard hafi Patrick Vieira verið fullkomnasti miðjumaður í heimi. Nú sé Gerrard hinsvegar búinn að taka við kyndlinum. „Gerrard er hjartað í Liverpool-liðinu. Hann er með frábærar sendingar, tæklar út um allan völl og skorar mörk. Það mikilvægasta við hann er þó það að hann færir öðrum leikmönnum í kringum sig trú og sjálfstraust," sagði Zidane og það eru örugglega mjög margir sammála honum með það.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Sjá meira